Handbolti

Mynda­syrpa: Lands­liðsþjálfarar á ógleyman­legum slag í Krikanum

Sindri Sverrisson skrifar
Ungir stuðningsmenn Vals fylgdust spenntir með þegar dómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson skoðuðu vafaatvik á skjánum.
Ungir stuðningsmenn Vals fylgdust spenntir með þegar dómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson skoðuðu vafaatvik á skjánum. vísir/Anton

Fjórði leikur FH og Vals í einvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta fer í sögubækurnar sem einn sá rosalegasti í sögu mótsins. Ljósmyndarinn Anton Brink var í Kaplakrika og náði frábærum myndum.

FH vann leikinn að lokum, 37-36, en það var ekki fyrr enn eftir tvær framlengingar og réðust úrslitin á vítakasti í lok þeirrar seinni.

Þar með er ljóst að liðin mætast í oddaleik í N1-höllinni á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld.

Myndasyrpu úr Krikanum í gærkvöld má sjá hér að neðan.

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari og Roland Eradze, markmannsþjálfari landsliðsins, voru að sjálfsögðu á svæðinu.vísir/Anton

Stuðningsmenn FH fjölmenntu í Kaplakrika og fengu ógleymanlegan sigurleik.vísir/Anton

Þorgils Jón Svölu Baldursson svífur inn af línunni.vísir/Anton

Nýjasti landsliðsmaðurinn Jón Bjarni Ómarsson með boltann á línunni.vísir/Anton

Ingvar Dagur Gunnarsson og Ágúst Birgisson féllust í faðma.vísir/Anton

Sigursteinn Arndal lifði sig vel inn í leikinn á hliðarlínunni.vísir/Anton

Stuðningsmenn Vals þurfa að blása í herlúðra á fimmtudaginn.vísir/Anton

Einar Örn Sindrason fær óblíðar móttökur.vísir/Anton

Björgvin Páll Gústavsson var að vanda fljótur að koma boltanum í leik.vísir/Anton

Daníel Freyr Andrésson var hetja FH í lokin.vísir/Anton

Arnór Snær Óskarsson nánast klæddur úr treyjunni.vísir/Anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×