Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. maí 2026 12:14 Halli gat ekki horft upp á Jenu á stefnumóti með öðrum manni, fór til hennar og kyssti á munninn. DR Íslendingurinn Haraldur Sigvaldason, kallaður Halli, er meðal keppenda í dönsku raunveruleikaþáttunum Hotel Romantik sem fjalla um tuttugu eldri borgara í leit að ástinni. Strax í fyrsta þætti hreifst Halli af náttúrulækninum Jenu og í öðrum þætti yfirgaf hann stefnumót með annarri konu til að kyssa Jenu á munninn.
Raunveruleikaþættirnir Hotel Romantik hófu göngu sína á danska ríkisútvarpinu í fyrra. Þar skráðu tuttugu eldri borgarar sig til leiks í von um að finna sálufélaga sinn á seinni árum. Önnur sería þáttanna hóf göngu sína um miðjan apríl, þar eru tuttugu nýir keppendur og gerast þættirnir á Mallorca á Spáni. Meðal keppenda er hinn 65 ára Haraldur Sigvaldason sem flutti til Danmerkur fyrir 32 árum síðan og starfar sem smiður í Snedsted í Norður-Jótlandi. Hann skildi fyrir sex árum síðan, ákvað að skrá sig í þáttinn til að finna ástina og fann strax í byrjun fyrir neistum með Jenu Frederikke Krogslykke. „Ég hugsaði frá byrjun að ef það væri tækifæri til að finna ástina þá ætti ég að sleppa af mér takinu. Strax í fyrsta þætti fann ég fyrir miklum neistum, sem betur fer. Það kom mér reyndar á óvart,“ sagði Halli um reynslu sína í viðtali við Alt.dk. Halli og Jena kysstust í fyrsta þætti.DR Haraldur vill finna stóru ástina sem hann hafi verið að leita að allt sitt líf. „Þegar ég kynntist Jenu fyrst sá ég vel hirta og fallega konu með frábæran stíl. En það sem hafði mest áhrif á mig var hvað hún var opin,“ sagði Haraldur í viðtalinu. Jena er 69 ára, á tvö börn og fjögur barnabörn og heldur úti sinni eigin klíník í Velje þar sem hún býður upp á heilun og óhefðbundnar lækningar. Hún hefur verið einhleyp í eitt og hálft ár og er að leita að kærleiksríkum, eftirtektarsömum og hlýjum manni. Jena sagði að henni kæmi vel saman við Halla, þau deildu ástríðu fyrir íslenska hestinum. „Við höfðum svo mikið til að tala um að við hurfum alveg inn í samræðurnar. Það var virkilega dásamleg upplifun að kynnast manneskju sem ég vissi ekkert um fyrirfram og svo gekk það eins og í sögu. Það var virkilega góð byrjun,“ sagði Jena um samband þeirra. Í fyrsta þættinum slettu þau úr klaufunum á dansgólfinu áður en Halli fylgdi Jenu heim á hótelið og þar enduðu þau kvöldið á vænum kossi. Truflaði stefnumótið með kossi Annar þáttur seríunnar ber heitið „Ör Amors“ en þar bjóða konurnar köllunum á stefnumót. Tarot-spákonan Karin bauð Halla á deit en þegar stefnumótið var byrjað gat hann ekki haldið aftur af sér, truflaði stefnumót Jenu og braut reglur þáttarins. „Ég var skotinn af Karin þannig ég þurfti að fara á stefnumót með henni. En ég vildi miklu frekar fara á stefnumót með minni elskulegu Jenu,“ sagði Halli um fyrirkomulagið í öðrum þættinum Þar má sjá Halla standa upp frá borðinu sínu, segja: „Ég þarf bara að fara að pissa,“ fara upp að næsta borði þar sem Jena var á stefnumóti með slökkviliðsmanninum Buller, taka utan um hana og kyssa á munnninn. „Nú brjótum við reglurnar aðeins,“ mátt síðan heyra hann segja, taka stól og fara með til Jenu. Karin tók þessu ekki of nærri sér, settist niður hjá Halla og Jenu og spjallaði við þau. Hér að neðan má sjá klippuna:
Ástin og lífið Danmörk Raunveruleikaþættir Eldri borgarar Íslendingar erlendis Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira