Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. maí 2026 20:22 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Þrír ferðalangar á skemmtiferðaskipi eru taldir hafa látist vegna smits af hantaveiru á skipinu. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi en umrætt skemmtiferðaskip mun leggja leið sína til Íslands seinna í mánuðinum.
Samkvæmt BBC hefur eitt hantaveirusmit verið staðfest og leikur grunur á því að fimm aðrir hafi einnig smitast. Haft er eftir Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni að þrír hafi látist. Skemmtiferðaskipið MC Hondius, sem er í eigu hollensks fyrirtækis, var á leið til Argentínu frá Grænhöfðaeyjum en þurfti að stoppa í Suður-Afríku vegna veikindanna um borð. Til stendur að sigla skipinu til Íslands í lok maí og stoppa í Keflavík, Breiðavík, Ísafirði og Flatey en ferðinni lýkur á Akureyri. Sjötíu ára karlmaður var sá fyrsti til að finna fyrir einkennum veirunnar og lést hann um borð. Eiginkona mannsins, sem var 69 ára, veiktist um borð og var flutt á sjúkrahús í Suður-Afríku þar sem hún lést. 69 ára gamall Breti sem var einnig um borð liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Suður-Afríku. Mannfólk smitast venjulega af hantaveirunni úr umhverfinu, til að mynda ef það kemst í snertingu við þvag eða saur frá sýktum nagdýrum. Samkvæmt grein á Vísindavefnum frá árinu 2000 eru nagdýr aðalhýsill veirunnar. Einkenni sjúkdómsins í mönnum eru hiti, blóðþrýstingsfall og nýrnabilun en dánartíðni er um fimm til tíu prósent.
Suður-Afríka Skemmtiferðaskip á Íslandi Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira