„Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Smári Jökull Jónsson skrifar 3. maí 2026 21:31 Andrés Bertelsen og Guðmundur Finnbogason eru oddvitar þeirra tveggja framboða sem bjóða fram í Grímsnes- og Grafningshreppi. Vísir/Lýður Valberg Í Grímsnes- og Grafningshreppi eiga tæplega 700 manns löghemili. Þar er einnig stærsta sumarbústaðabyggð landsins en á fjórða þúsund frístundahús eru skráð í sveitarfélaginu. Stærsta kosningamálið í hreppnum tengist einmitt frístundahúsum og þar eru ekki allir sammála.
Tveir listar eru í framboði í Grímsnes- og Grafningshreppi, annars vegar A-listi, framboðslisti um öflugt samfélag í vaxandi sveitarfélagi og hins vegar framboðið Betri sveit fyrir okkur öll. Eitt mál umfram önnur hefur verið áberandi í umræðunni fyrir kosningar, um hvernig sveitarfélagið hefur tekið á óskum þeirra sem vilja breyta skráningu frístundahúsa yfir í íbúðahús. „Okkur hefur fundist við jaðarsett“ Framboð Betri sveitar hefur sett þetta mál í öndvegi. Biskupstungnabraut í Grímsnes- og Grafnhingshreppi.Vísir „Okkur hefur fundist við svolítið jaðarsett. Við erum öll að borga hérna útsvar og eigum hérna hús en upplifum okkur eins og við séum jaðarsett,“ segir Andrés Bertelsen oddviti Betri sveitar. „Til dæmis þegar kemur að skólaakstri hjá börnunu okkar. Ég og konan mín búum hérna við hliðina á öðru húsi, 20 metra frá öðru húsi. Börnin okkar fá ekki skólaakstur en börnin við hliðina á okkur fá.“ Andrés Bertelsen er oddviti Betri sveit fyrir okkur öll í Grímsnes- og Grafningshreppi.Vísir/Lýður Valberg Hann segir það misskilning að fólk sé að biðja um að vera með lögheimili í sumarbústað. „Ég held að sveitarstjórn hafi hingað til verið hrædd um að opna einhverjar hurðir. Í staðinn fyrir að mynda einhverja skýra stefnu um þessi málefni sem er orðið tímabært að gera hjá okkur öllum. Ég held að við búum við breytt búsetuskilyrði á öllu landinu, þetta er að aukast.“ „Fólk er að færa búsetuna sína í frístundahúsið einfaldlega vegna þess að þetta eru ekki lengur einhverjir 50 fermetra sumarbústaðir, þetta eru 150, 250 fermetra hús,“ segir Andrés. „Myndi enginn skipuleggja frístundabyggð“ Guðmundur Finnbogason oddviti A-lista segir málið í raun snúast um skipulagsrétt sveitarfélaganna. „Ég hef alveg fullan skilning á því að fólk sé að berjast fyrir því sem það vill fá í samfélaginu, ég held bara að þetta sé ekki rétti staðurinn til þess,“ segir Guðmundur en viðtal við oddvitana báða birtist í kosningaþætti Ísland í dag þar sem nokkur sveitarfélög á Suðurlandi voru heimsótt. Guðmundur Finnbogason oddviti A-lista í Grímsnes- og Grafningshreppi.Vísir/Lýður Valberg „Þetta er fyrst og fremst samtal sem þarf að eiga sér stað á milli sveitarfélaga og ríkis ef einhverjar svona breytingar eiga að verða. Þetta er ekki eitthvað sem við eigum að vera að draga inn í sveitastjórnarkosningar sem náttúrulega eiga bara í eðli sínu að snúast um rekstur sveitarfélagsins,“ segir Guðmundur. Ef gert yrði auðveldara að breyta skráningu frístundahúsa yfir í íbúðahús myndi slíkt hafa mikil áhrif á sveitarfélag eins og Grímsnes- og Grafningshrepp þar sem 20% sumarhúsa landsins eru, alls um 3400 talsins. Frá Borg í Grímsnesi.Vísir „Ef við ætluðum að fara í einhverja svona vegferð þar sem við erum í raun að taka þessa reglu, sem er búin að vera í gildi mjög lengi að ekki er hægt að skrá lögheimili sitt í frístundahúsi, þá ertu í raun bara að segja við sveitarfélögin að skipulagið sem þau hafa byggt upp síðustu áratugi hafi enga þýðingu lengur.“ „Við værum í rauninni líka að segja það að það myndi enginn skipuleggja frístundabyggð neins staðar í dag vegna þess að við myndum ekki vita hvað það myndi þýða eftir eitt, tvö eða þrjú ár.“ „Erum ekki að biðja um meiri þjónustu en við erum með nú þegar“ Andrés ítrekar að ekki sé verið að biðja um að skrá lögheimili í sumarbústað. „Við erum að biðja um svokallað aðsteturslögheimili. Við erum ekki að biðja um þjónustu sem snýr að snjómokstri eða að sækja ruslið okkar. Þegar kemur að börnunum er það annað. Við erum ekki að biðja um meiri þjónustu en við erum með nú þegar.“ Frá Borg í Grímsnesi.Vísir Hann hafi óskað eftir samtali við núverandi sveitarstjórn um málið. Margir hafi upplifað höfnun þegar ákveðið var í nóvember að setja allt deiliskipulag í frístundabyggð í bið vegna óviss um málaflokkinn. „Það var skýr beiðni um samtal. Ég skil framboðið sem er nú þegar í sveitarfélaginu, ég veit alveg hvað þau eru að fara fram á. Ég veit hvað þau vilja. En ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum,“ segir Andrés. Engin lausn í augsýn Guðmundur sér enga góða lausn á málinu í bráð. „Ef við ætluðum að fara í þessa vegferð þá þyrfti þetta að vera þannig útfærsla að hún gangi upp, sérstaklega gagnvart þeim íbúum sem um ræðir.“ „Hún þyrfti líka að ganga upp gagnvart sveitarfélögunum á þann hátt að hún væri ekki að setja þau í einhverja fjárhagslega stöðu sem væri ómöguleg. Það er bara mjög líklegt að það yrði þannig,“ bætir hann við. „Þannig að nei, ég er ekki með neina útfærslu að lausn að þessu,“ segir Guðmundur að lokum.
Grímsnes- og Grafningshreppur Byggðamál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira