Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar 30. apríl 2026 12:16 Við stöndum því frammi fyrir þeirri stöðu að umferðartafir í Reykjavík eru orðnar sambærilegar við Kaupmannahöfn og litlu minni en í París og London. Þetta eru ekki bara óþægindi, þetta er gríðarlegt efnahagslegt tjón. Árlegur kostnaður vegna umferðartafa er metinn nálægt 100 milljörðum króna. Að óbreyttu er gert ráð fyrir að tafir aukist um 30–60% á næstu tíu árum. Þetta þýðir í reynd að stór hluti þeirra kjarabóta sem samið hefur verið um í styttingu vinnuvikunnar fer einfaldlega í súginn. Borgarlínan er dýr lausn sem leysir ekki vandann Þrátt fyrir þessa stöðu er haldið áfram með útfærslu Borgarlínunar í upplýsingaóreiðu og þvert á alla skynsemi. Samkvæmt nýjustu áætlunum kostar verkefnið um 136 milljarða króna, en þetta eru bara fyrstu tölur sem eiga eftir að hækka. Þær jafngilda samt um 16,3 milljónum króna á hvern notanda almenningssamgangna í dag. Hagfræðilegt mat bendir til neikvæðrar arðsemi upp á um 210 milljarða króna og það sem verra er að jafnvel með Borgarlínunni er gert ráð fyrir meiri umferðartöfum þegar framkvæmdum lýkur. Á sama tíma á að fækka almennum akreinum til að rýma fyrir sérakreinum sem þýðir einfaldlega meiri tafir fyrir meginþorra fólks með tilheyrandi samfélagslegri sóun. Hver borgar reikninginn? Fjármögnun verkefnisins er mjög óljós en ljóst að hún mun kalla á stóraukna skattheimtu, enda um að ræða eina stærstu opinberu framkvæmd í sögu landsins. Í raun er hér verið að leggja til að færa hundruð milljarða frá skattgreiðendum til tiltölulega lítils hóps notenda byggt á óraunhæfum forsendum um notkun. Komandi kynslóðir sitja svo uppi með himin háan rekstrarkostnað. Raunhæfari leið Ástæðan fyrir andstöðu Miðflokksins er einföld. Það er verið að verja hugmynd vegna þess að of miklu hefur þegar verið fórnað í hana en ekki vegna þess að hún sé góð. Við teljum vafalaust að hægt sé að ná betri árangri fyrir mun minna fé og á styttri tíma. Við leggjum til að: bæta núverandi strætókerfi með aukinni tíðni setja forgangsakreinar hægra megin við umferð veita strætó forgang með snjallljósastýringu Áætlaður kostnaður er fjórðungur til þriðjungur af Borgarlínunni. Að auki viljum við prófa tímabundið að fella niður fargjöld til að auka notkun og styðja við raunverulega hvata í stað þvingana. Horfa fram á veginn en ekki aftur í tímann Samgöngur eru að taka hröðum breytingum. Snjallstýring umferðar og sjálfkeyrandi ökutæki eru þegar orðin raunveruleiki víða erlendis og þróast mjög hratt. Í því ljósi er óábyrgt að festa höfuðborgarsvæðið í dýru og ósveigjanlegu kerfi sem byggir á forsendum gærdagsins. Það eru ekki rök að halda áfram á óbreyttri leið þó það sé búið að eyða 10 árum í glærukynningar. Við eigum að halda valkostum opnum, ekki þrengja að þeim. Val sem skiptir máli Við stöndum frammi fyrir skýru vali. Að halda áfram á sömu braut með auknum töfum, auknum kostnaði og minni lífsgæðum. Eða að velja skynsamari, hagkvæmari og sveigjanlegri lausnir. Það er ekki skortur á hugmyndum sem er vandamálið. Það er skortur á vilja til að endurskoða rangar ákvarðanir. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ari Edwald Mest lesið Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar