Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Valur Páll Eiríksson skrifar 30. apríl 2026 09:29 Parker hefur stýrt Burnley í hinsta sinn. Steven Gerrard þykir líklegastur til að taka við. Samsett/Getty Scott Parker hefur sagt upp sem þjálfari Burnley í ensku úrvalsdeildinni og mun ekki stýra liðinu út leiktíðina. Burnley er þegar fallið í B-deildina fyrir næstu leiktíð.
Tap Burnley fyrir Manchester City fyrir rúmri viku síðan staðfesti fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni eftir stutt stopp. Burnley kom upp síðasta vor. Um er að ræða annað fall liðsins á þremur árum úr deildinni, það féll einnig sem nýliði undir stjórn Vincent Kompany vorið 2024. Mike Jackson, aðstoðarmaður Parkers, mun stýra Burnley í þeim fjórum leikjum sem liðið á eftir í ár. Sá fyrsti er gegn Leeds United á föstudagskvöldið kemur. Parker tók við Burnley af Kompany sumarið 2024 og kom liðinu upp úr B-deildinni í fyrstu tilraun, hafandi lent í öðru sæti Championship-deildarinnar síðasta vor. Burnley leitar nú nýs stjóra til framtíðar eftir að Jackson klárar leiktíðina. Steven Gerrard er sagður ofarlega á lista forráðamanna félagsins og er taldur líklegastur samkvæmt veðbönkum. Gerrard hefur verið án starfs síðan hann sagði upp hjá Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu í janúar 2025. Hann hafnaði því að taka við Rangers í október 2025, en gerði skoska liðið að meisturum 2021. Hann stýrði Aston Villa í tæpt ár milli 2021 og 2022. Craig Bellamy er einnig sagður ofarlega á lista en hann stýrir velska landsliðinu. Hann var aðstoðarþjálfari Kompany hjá Burnley á tíma Belgans þar. Aðrir sem hafa verið nefndir til sögunnar eru Ole Gunnar Solskjær, Thomas Frank, Liam Rosenior og Sean Dyche.
Burnley FC Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira