Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir skrifar 29. apríl 2026 20:01 Þessa dagana hefur kvikmyndin Regína frá árinu 2001 verið mér ofarlega í huga. Í myndinni var litið inn á elliheimilið Grund, þar sem var líf og fjör. Eldri borgarar dönsuðu saman, sungu og sátu yfir spilum. Það er nánast þannig að maður freistast til að skrá sig á biðlista - bara til þess að komast inn í stemminguna, ekki bara því hann gæti verið langur. Ég man þegar ég kom fyrst inn á alvöru elliheimili – og sá að þetta er ekki alveg raunin. Þetta er þó einföld mynd af því hvernig daglegt líf eldri borgara í Reykjavík gæti litið út – ef viljinn væri til staðar. Í Regínu var ekki látið nægja að sinna grunnþörfum, heldur er markvisst skapað rými fyrir gleði, tengsl og tilgang. Þetta gerist samt ekki að sjálfu sér. Í Reykjavík þarf að gera kröfur um meira en bara lágmarksþjónustu. Kvikmyndin Regína er ekki bara skemmtileg, heldur minnir okkur á að eldri borgarar þurfa ekki eingöngu umönnun – þeir þurfa líka smá upplyftingu. Með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar fjölgar eldri borgurum hratt og í Reykjavík hefur þeim fjölgað um heilt prósent, bara á síðustu fimm árum. Það hljómar kannski ekki svo mikið, en það eru tvöþúsund og fimmhundruð manns! Umræðan hefur að miklu leiti snúist um skort á hjúkrunarrýmum – sem jú, er vissulega mikilvægt. En það sem gleymist oft er að lang flestir eldri borgarar eru ekki á þeim stað að þurfa hjúkrun. Langflestir íbúar í Reykjavík búa heima - og þeir eru of oft einir. Félagsleg einangrun eldri borgara er eitt stærsta velferðarmál borgarinnar, en fær samt furðulega litla athygli. Með aldrinum breytist lífið. Vinahópar minnka, makar falla frá og fjölskyldur dreifast. Heimilið verður stærra og dagarnir lengri. Þó að allt sé „í lagi“ á pappír er það ekki endilega gott, því jafnvel þegar grunnþarfir eru uppfylltar, getur skortur á félagslegri virkni haft veruleg áhrif á líðan fólks. Dagdvalarrými eru til staðar í Reykjavík, en þau eru of fá, of einsleit og stundum einfaldlega ekki nógu spennandi. Það er ekki nóg að bjóða upp á pláss. Fólk þarf ástæðu til að mæta og það mætir ekki nema það hafi eitthvað að hlakka til. Við sáum það í Regínu: Það er hægt að skemmta sér eftir sjötugt. Það gerist þegar við hættum að sætta okkur við lágmarkið. Þegar við búum til rými fyrir fjölbreytta og skemmtilega dægurstyttingu – ekki bara þjónustu. Það á ekki bara að vera „í lagi“ að eldast í Reykjavík. Það á að vera gott. Jafnvel skemmtilegt. Og ef við þurfum bíómynd til að minna okkur á það – þá er kominn tími til að gera eitthvað í því. Höfundur skipar 5. sæti Framsóknarflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar