Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Aron Guðmundsson skrifar 29. apríl 2026 11:52 Hilmar Smári með boltann í síðasta leik Stjörnunnar og Tindastóls. Vísir/Ernir Eyjólfsson Hilmar Smári Henningsson, leikmaður Stjörnunnar, segir sitt lið vera með gullið tækifæri í höndunum fyrir leik þrjú í einvígi gegn Tindastól í undanúrslitum Bónus deildarinnar í körfubolta. Upp úr sauð eftir síðasta leik liðanna. Hilmar veltir sér ekki upp úr umræðunni og umtalinu í kringum einvígi liðanna. „
Við erum búnir vinna fyrir því að vera komnir í gott tækifæri,“ segir Hilmar Smári í samtali við Vísi en fáir gáfu Stjörnunni möguleika í þessu einvígi eftir að liðið hafði misst tvo landsliðsmenn í meiðsli. Leikur þrjú í einvígi liðanna fer fram í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. „Við trúum enn, þrátt fyrir alla aðra, að við séum enn með gríðarlega gott lið. Hugarfarið komandi inn í þennan leik er bara það sama og fyrir aðra. Maður kemur inn í hvern einasta leik til þess að vinna. Í úrslitakeppninni er gríðarlega erfitt að vinna tvo leiki í röð, hvað þá þrjá. En það er að sjálfsögðu markmiðið okkar. Við erum á frábærum stað. Á þeim stað sem við viljum vera á.“ Gullið tækifæri Með sigri í kvöld fer Stjarnan áfram í úrslitaeinvígið og sópar út Tindastól á þeirra eigin heimavelli þar sem að Stjarnan lyfti Íslandsmeistaratitlinum á síðasta tímabili. Spennan fyrir leik kvöldsins er mikil því þrátt fyrir að einvígið standi 2-0 Stjörnunni í vil hafa leikir liðanna til þessa verið algjört augnakonfekt, boðið upp á mikla spennu. Frá leik tvö í undanúrslitaeinvígi Stjörnunnar og TindastólsVísir/Ernir Eyjólfsson „Á milli leikja númer eitt, tvö og þrjú að koma líkamanum á það stig þar sem hann er tilbúinn í að takast á við næstu baráttu. Við höfum verið að gera það vel og Stjarnan hjálpar til með alls konar endurheimt, þjálfararnir og sjúkrateymið í kringum liðið eru á fullu. Auðvitað eykst spennan eftir því sem nær dregur leiknum. En þetta er jákvæð spenna. Við erum með gullið tækifæri í kvöld. Ætlum að gera allt sem við getum til að klára þann díl. Taka þetta skref fyrir skref, einn leikhluta í einu. Spila okkar körfubolta, fara eftir okkar gildum. Þá höfum við trú á því að þetta fari eftir okkar vegi.“ „Hefur engin áhrif á mig“ Síðasta leik liðanna í Garðabænum lauk með flautukörfu Hilmars Smára í framlengdum leik. Það sauð upp úr því mat gestanna frá Sauðárkróki var að Hilmar Smári hefði skrefað í aðdraganda körfunnar. Mikið hefur verið rætt og ritað um umrædda körfu og þykir ljóst að karfan hefði ekki átt að standa. Hilmar Smári lætur umræðuna og umtalið ekki hafa áhrif á sig. „Nei. Ég er með samfélagsmiðla og allt tengt umræðunni í kringum körfuna rosa neðarlega í minni forgangsröðun þegar kemur að úrslitakeppninni. Ég fylgist voða lítið með því hvað er í gangi. Þessari umræðu og umtali. Ég sé engan tilgang fyrir mig að vera fylgjast með því. Við fórum frá síðasta leik með sigur. Það er það eina sem skiptir mig máli. Sama hvað gerðist. Ég átta mig alveg á umræðunni sem er í gangi. En það hefur engin áhrif á mig.“ Býst við sturluðu andrúmslofti Mistök hafi og muni eiga sér stað. Það sé partur af íþróttum. „Ef maður tekur skref til baka, hugsar aðeins hvernig íþróttirnar fara fram. Þá eru mistök sem gerast hjá dómurum, leikmönnum og þjálfurum. Í kringum hvern einasta leik. Stundum oft í leik. Það er bara náttúrulegt eðli íþróttanna, ein af ástæðum fyrir því af hverju þær eru svona skemmtilegar. Þetta er ekki bara vélrænt ferli. Þetta gerist í beinni, er spennandi og hluti af þessu. Andrúmsloftið þarna í kvöld verður sturlað. Þetta er úrslitakeppnis andrúmsloft. Stemning sem maður vill taka þátt í. Ég hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum með stemninguna þegar að ég kem í Síkið. Ég get ekki beðið. Þetta verður ótrúlega gaman.“ Stuðningsfólk beggja liða hefur verið frábært í úrslitakeppninniVísir/Ernir Eyjólfsson Stoltur af sínu liði Stemningin hjá leikmönnum Stjörnunnar er góð. Liðið hefur þjappað sér saman. „Þetta er alveg einstakt. Þegar maður nær að mynda svona stemningu, gleði og gott andrúmsloft. Að vera hluti af svoleiðis er bara heiður. Gerir þetta skemmtilegra. Stundum getur þetta farið á hinn boginn. Getur orðið erfitt. Maður er bara gífurlega þakklátur fyrir að vera í þeirri stöðu sem við erum í í dag. Ég er ógeðslega stoltur af mínu liði. Hvernig við erum búnir að halda haus og standa okkur eftir öll þessi áföll sem hafa átt sér stað. Það eru ekkert margir sem geta labbað frá borði stoltir og sagt frá því að hafa komið svona til baka. Ekki gefið tommu eftir. Það þjónar engum tilgangi fyrir okkur að fara breyta okkar vegferð í þessu núna. Þetta er liðið sem við erum með í dag. Okkur líður vel í þessu liði. Treystum hvor öðrum. Þetta gerir íþróttina sem við elskum svo miklu skemmtilegri.“ „Ég læt þig vita“ Álagið mikið en er þreyta farin að segja til sín? „Nei. Þetta eru nú bara undanúrslitin núna. Allir þeir sem spiluðu síðasta leik eru heilir núna. Tilbúnir í annan slag. Þreytan kemur kannski seinna. Hún hefur ekki komið hingað til. Ég læt þig bara vita þegar hún kemur.“ Leikur þrjú í einvígi Tindastóls og Stjörnunnar í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport í kvöld og hefst klukkan korter yfir sjö. Leiknum er einnig lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Bónus-deild karla Stjarnan Tindastóll Mest lesið Arsenal er Englandsmeistari Enski boltinn Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Enski boltinn „Stjörnufólk er pirrað“ Körfubolti Mikill skellur fyrir Skagamenn sem leita á náðir KSÍ Íslenski boltinn Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ Körfubolti Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Enski boltinn Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Íslenski boltinn Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Körfubolti Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Handbolti Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Baldur tekur við Álftnesingum Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 95-70 | Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Bjarni Guðmann framlengir í Garðabæ Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Sjá meira