Heimsmeistari mætir og ætlar að slá met í Dyrfjallahlaupinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. apríl 2026 13:02 Heimsmeistarinn ætlar að slá brautarmet Andreu Kolbeinsdóttur og rúmlega það. Sænska hlaupadrottningin Tove Alexandersson hefur staðfest komu sína í Dyrfjallahlaupið í sumar.
Dyrfjallahlaupið fer fram þann 4. júlí næstkomandi en hlaupið er er þekkt fyrir stórbrotna náttúru og krefjandi hlaupaleiðir þar sem farið er um eitt fegursta hlaupa- og göngusvæði landsins, Víknaslóðir, í nágrenni við Borgarfjörð eystri. Tove Alexandersson er stigahæsta kona heims á heimslista ITRA (International Trail Running Association) og varð heimsmeistari í utanvegahlaupum á heimsmeistaramótinu í Canfranc í september síðastliðnum. Hana þarf vart að vart að kynna fyrir áhugafólki um utanvegahlaup. Hún er ríkjandi heimsmeistari í utanvegahlaupum og hefur unnið tæplega þrjátíu heimsmeistaratitla í rathlaupi og skíðarathlaupi. Þetta verður í fyrsta sinn sem hún keppir á Íslandi. Sannur heiður fyrir hlaupið Olgeir Pétursson, hlaupastjóri Dyrfjallahlaupsins, segir þetta ótrúlega spennandi viðburð: „Tove er besta utanvega-hlaupakona heims í dag og það er okkur sannur heiður að hún skyldi velja Dyrfjallahlaupið fyrir sína fyrstu keppni á Íslandi. Hún ætlar að hlaupa 24 km leiðina okkar, sem er mjög hröð fyrri helminginn en fer svo í gegnum tvö fjallaskörð sem eru vel krefjandi . Það verður ótrúlega spennandi að sjá hversu hratt hún kemst yfir.” Skorar á íslenska landsliðið Friðleifur, formaður langhlaupanefndar FRÍ, bætir við að íslensku hlaupaelítunni sé boðið að taka þátt í þessari sögulegu keppni: „Allt landsliðið í utanvegahlaupum er komið með boðsmiða í hlaupið og ég skora á þau öll að koma og veita Tove alvöru keppni á íslenskri grundu. Og í rauninni bara öll sem elska góða áskorun og vilja máta sig við Tove í frábærri keppnisbraut.“ Markmiðið stærra en bara brautarmet Búist er við því að Tove geri alvarlega atlögu að brautarmeti kvenna, sem Andrea Kolbeinsdóttir á nú (2:22:40). Markmiðið er þó stærra að sögn mótshaldara, en engin kona hefur enn farið brautina undir tveimur klukkustundum. Til samanburðar á Þorbergur Ingi Jónsson brautarmet karla, 1:55:58, og verður fróðlegt að sjá hversu nálægt því meti besta kona heims kemst, spurning hvort að hún nái að slá það.
Hlaup Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Enski boltinn Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Fótbolti Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Orri á skotskónum Fótbolti Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Mikið í húfi í lokaumferðinni Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Sjá meira