Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Valur Páll Eiríksson skrifar 28. apríl 2026 10:01 Arnór Ingvi fór af velli eftir rúmlega hálftíma leik í gær. Hann ætti að ná sér fyrir leikinn við Val. Vísir/Anton Brink Arnór Ingvi Traustason er ekki alvarlega meiddur. Honum var skipt af velli í 4-2 sigri KR á FH í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir um varúðarráðstöfun að ræða.
Það fór um margan KR-inginn þegar Arnóri Ingva var skipt af velli eftir rúmlega hálftímaleik í gær. Enda um að ræða fyrrum atvinnu- og landsliðsmann sem kemur með mikið að borðinu. Hann hefur farið glimrandi vel af stað með KR-liði sem er með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki deildarinnar. Í samtali við Vísi í morgunsárið segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, að ekki sé um alvarleg meiðsli að ræða. „Hann stífnaði aðeins upp og þetta var varúðarráðstöfun. Orri Hrafn kom sterkur inn, eins og hann hefur gert í öllum leikjum hingað til. En Arnór ætti að vera klár um helgina,“ segir Óskar Hrafn við Vísi. Taka má undir að Orri Hrafn hafi komið inn af krafti en hann hafði lagt upp mark fyrir Aron Sigurðarson innan við mínútu eftir að hann kom inn á í gær. Alls hefur Orri Hrafn lagt upp þrjú mörk í fyrstu fjórum leikjunum, hafandi aðeins spilað tæplega 37 mínútur að meðaltali í leik. Það gerir stoðsendingu á tæplega 49 mínútna fresti. Óskar Hrafn segist því búast við því að Arnór Ingvi nái leiknum við Val á laugardaginn kemur. KR sækir þar Val heim á Hlíðarenda en Valsmenn eru með níu stig af tólf mögulegum eftir sigur á Stjörnunni í gær. 5. umferð Bestu deildar karla Laugardagur 2. maí 15:50 Þór Ak. - KA (Sýn Sport Ísland 2) 19:00 Valur - KR (Sýn Sport Ísland) Sunnudagur 3. maí 17:50 Subway Messan (Sýn Sport Ísland 2) 17:50 ÍA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 3) 17:50 FH - Fram (Sýn Sport Ísland 4) 17:50 Keflavík - Víkingur R. (Sýn Sport Ísland 5) 17:50 ÍBV - Breiðablik (Sýn Sport 6)
KR Besta deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira