Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Lovísa Arnardóttir skrifar 28. apríl 2026 07:54 Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical. Vísir/Vilhelm Sala á fyrsta ársfjórðungi Emblu Medical hf. árið 2026 nam 232 milljónum Bandaríkjadala eða 29 milljörðum íslenskra króna, sem samsvarar 15 prósenta heildarvexti og fjögurra prósenta innri vexti. Hagnaður félagsins á fyrsta ársfjórðungi nam tveimur milljörðum íslenskra króna og jókst um 21 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjör Emblu Medical, áður Össurar, á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þar kemur einnig fram að innri vöxtur í sölu á stoðtækjum nam níu prósentum á fjórðungnum, vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var eitt prósent og tekjur af þjónustu við sjúklinga drógust saman um eitt prósent. „Sala á fyrsta ársfjórðungi var sterk og nam 232 milljónum Bandaríkjadala. Heildarvöxtur nam 15%, þar af var innri vöxtur 4%. Vöxtur á fjórðungnum var að mestu drifinn áfram af sterkri sölu stoðtækja, studdur af áframhaldandi jákvæðri þróun þvert á markaði og vöruflokka. Vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var hóflegur, á meðan tekjur af þjónustu við sjúklinga voru hægari á ársfjórðungnum, sem við gerum þó ráð fyrir að taki við sér síðar á árinu,“ segir Sveinn Sölvason forstjóri í tilkynningunni. Hann segir að það megi sjá jákvæða þróun í þjónustu við skjólstæðinga í Bandaríkjunum og framkvæmd stefnumótandi verkefna gangi vel. „Framangreint styður við áframhaldandi vöxt í þjónustu okkar í alþjóðlegu samhengi á komandi fjórðungum og gerir okkur kleift að ná til fleiri sem þurfa á vörum okkar að halda. Einnig var ánægjulegt að sjá hagnað félagsins aukast um 21% á fjórðungnum. Í ljósi þessa er fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2026 óbreytt, með væntanlegum innri vexti í sölu á bilinu 5–8% og EBITDA-framlegð á bilinu 20–22%,“ segir hann að lokum. Í tilkynningu kemur einnig fram að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 40 milljónum Bandaríkjadala (5 milljörðum íslenskra króna) sem jafngildir 17 prósenta EBITDA-framlegð á fjórðungnum, samanborið við 18 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2025. EBITDA-framlegð lækkaði í fjórðungnum aðallega vegna neikvæðra gengisáhrifa og tolla. Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi jókst um 21 prósent og nam 15 milljónum Bandaríkjadala (2 milljörðum íslenskra króna), sem samsvarar sex prósentum af veltu. Fjárhagsáætlun ársins 2026 er óbreytt, 5-8 prósenta innri vöxtur og 20-22 prósenta EBITDA-framlegð að teknu tilliti til einskiptisliða. Á fjórðungnum voru samkvæmt tilkynningu keypt 556.103 eigin bréf fyrir samtals 2,6 milljónir Bandaríkjadala (0,3 milljarða íslenskra króna).
Embla Medical Málefni fatlaðs fólks Uppgjör og ársreikningar Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira