Hrein torg, fögur borg Hildur Björnsdóttir skrifar 27. apríl 2026 12:15 Hér áður stóð gjarnan á sorptunnum í Reykjavík „hrein torg, fögur borg“. Það eru orð að sönnu. Snyrtimennska og hreinlæti skipta öllu máli þegar kemur að upplifun á borgarlífi og virðingu fyrir því sem fyrir augu ber. Borgin er okkar heimili og við eigum að sjá til þess að hún skarti sínu fegursta í hversdeginum og þegar gesti ber að garði. Því miður virðist sem þetta gamalgróna slagorð hafi fallið í gleymsku undanfarna áratugi. Borgin okkar er því miður ekki nægjanlega snyrtileg, götur eru skítugar og svifryk hvílir hér yfir á blíðviðrisdögum. Svifrykið er ekki bara lýti á borgarumhverfinu, heldur beinlínis hættulegt heilsu borgarbúa eins og Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) hefur ítrekað bent á. En það er nú önnur og lengri saga. Sjálfstæðisflokkurinn vill ráðast í löngu tímabært hreinsunarátak í Reykjavík strax að loknum kosningum. Bætt umgengni um borgina byrjar nefnilega hjá borgaryfirvöldum sjálfum. Eins og sakir standa eru stofnbrautir og tengibrautir þvegnar einu sinni á ári og sópaðar þrisvar. Stígar og húsagötur fylgja í grófum dráttum sama kerfi. Oftar er svo þrifið í miðborginni. Þetta er ekki nóg, eins og ástand borgarinnar ber glöggt vitni um. Reykjavíkurborg hefur sömuleiðis innleitt svokallaða „Viljandi villt“ stefnu sem í grófum dráttum gengur út á að láta gróður vaxa villtan í borgarumhverfinu. Sláttur og umhirða látin lönd og leið, en einhverjir kynnu að segja þessa stefnu vera birtingarmynd stjórnartíðar Samfylkingarinnar í Reykjavík. Stjórnlaus vöxtur og ekkert aðhald. Þessu þurfum við að breyta. Ein af grunnskyldum borgarinnar er að þrífa götur og hirða um borgarumhverfið. Gras þarf að slá, og illgresi að reyta. Aðeins þannig setjum við tóninn fyrir bætta umgengni. Við þurfum að forgangsraða, og það strax. Gleymum ekki grunnþjónustunni. Hrein torg, fögur borg. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hildur Björnsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Sjá meira
Hér áður stóð gjarnan á sorptunnum í Reykjavík „hrein torg, fögur borg“. Það eru orð að sönnu. Snyrtimennska og hreinlæti skipta öllu máli þegar kemur að upplifun á borgarlífi og virðingu fyrir því sem fyrir augu ber. Borgin er okkar heimili og við eigum að sjá til þess að hún skarti sínu fegursta í hversdeginum og þegar gesti ber að garði. Því miður virðist sem þetta gamalgróna slagorð hafi fallið í gleymsku undanfarna áratugi. Borgin okkar er því miður ekki nægjanlega snyrtileg, götur eru skítugar og svifryk hvílir hér yfir á blíðviðrisdögum. Svifrykið er ekki bara lýti á borgarumhverfinu, heldur beinlínis hættulegt heilsu borgarbúa eins og Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) hefur ítrekað bent á. En það er nú önnur og lengri saga. Sjálfstæðisflokkurinn vill ráðast í löngu tímabært hreinsunarátak í Reykjavík strax að loknum kosningum. Bætt umgengni um borgina byrjar nefnilega hjá borgaryfirvöldum sjálfum. Eins og sakir standa eru stofnbrautir og tengibrautir þvegnar einu sinni á ári og sópaðar þrisvar. Stígar og húsagötur fylgja í grófum dráttum sama kerfi. Oftar er svo þrifið í miðborginni. Þetta er ekki nóg, eins og ástand borgarinnar ber glöggt vitni um. Reykjavíkurborg hefur sömuleiðis innleitt svokallaða „Viljandi villt“ stefnu sem í grófum dráttum gengur út á að láta gróður vaxa villtan í borgarumhverfinu. Sláttur og umhirða látin lönd og leið, en einhverjir kynnu að segja þessa stefnu vera birtingarmynd stjórnartíðar Samfylkingarinnar í Reykjavík. Stjórnlaus vöxtur og ekkert aðhald. Þessu þurfum við að breyta. Ein af grunnskyldum borgarinnar er að þrífa götur og hirða um borgarumhverfið. Gras þarf að slá, og illgresi að reyta. Aðeins þannig setjum við tóninn fyrir bætta umgengni. Við þurfum að forgangsraða, og það strax. Gleymum ekki grunnþjónustunni. Hrein torg, fögur borg. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar