Sló met Eiðs Smára Sindri Sverrisson skrifar 24. apríl 2026 08:31 Loki Kristjánsson lætur sig eflaust dreyma um feril í líkingu við þann sem Eiður Smári Guðjohnsen átti. Samsett/Getty/Valur Valsmenn höfðu góða ástæðu til að gleðjast í gærkvöld þegar þeir unnu frábæran 3-0 sigur gegn FH í 3. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Um leið var slegið met hjá félaginu.
Frá árinu 1994 og þar til í gærkvöld hafði goðsögnin Eiður Smári Guðjohnsen nefnilega verið yngsti leikmaður sem spilað hefur í treyju Vals. Eiður var fimmtán ára og 250 daga gamall þegar hann mætti inn í Valsliðið í Trópídeildinni, sem byrjunarliðsmaður, og lagði upp mark í fyrsta leik áður en hann skoraði svo í þeim næsta. Í gærkvöldi lék hinn efnilegi Loki Kristjánsson sínar fyrstu mínútur í efstu deild, þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Adam Ægi Pálsson í uppbótartíma. Loki var þá aðeins fimmtán ára og 13 daga gamall og bætti því félagsmet Eiðs hjá Val um 237 daga, sem sá yngsti til að spila fyrir Val. Þetta staðfesti íþróttafréttamaðurinn Víðir Sigurðsson, höfundur bókanna Íslensk knattspyrna, á Facebook-síðu sinni. Loki hefur nú 235 daga til að slá met Eiðs með fyrsta byrjunarliðsleiknum fyrir Val, og 232 daga til að verða yngsti Valsarinn til að skora mark í efstu deild. Eiður var hins vegar búinn að missa met sín sem yngsti leikmaður í sögu efstu deildar til að spila leik, byrja leik, gefa stoðsendingu og skora í leik, og eru þessi met nú komin öll komin til KR-ingsins Alexanders Rafns Pálmasonar. Loki Kristjánsson var fyrst valinn í leikmannahóp Vals fyrir leikinn við Þór í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á dögunum. Hann þykir fjölhæfur, með sterkan vinstri fót, og hefur verið áberandi í yngri flokkum Vals. Þá fékk hann nýverið tækifæri til að æfa með danska stórliðinu Midtjylland.
Besta deild karla Valur Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingur - ÍA | Íslandsmeistararnir fá Skagamenn í heimsókn Breiðablik - Keflavík | Bikarmeistararnir fá erfiðan heimaleik Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Sjá meira