Börnin geta ekki beðið Sigurveig Jóhannsdóttir skrifar 23. apríl 2026 16:02 Sem foreldri hef ég oft velt því fyrir mér hversu flókið það getur verið að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Þetta ætti ekki að vera stöðugt áhyggjuefni. Samt er raunveruleikinn sá að foreldrar neyðast til að taka launalaust frí, lenda í erfiðleikum í starfi eða setja fjárhag sinn í hættu vegna þess að börnin þeirra komast ekki að í leikskóla. Þetta er ekki einkamál foreldra. Þetta er samfélagslegt verkefni – og pólitísk ábyrgð.Fyrstu ár í lífi barns eru þau mikilvægustu. Á þessum tíma á sér stað gríðarlegur þroski, bæði félagslegur og tilfinningalegur. Umhverfið sem börn alast upp í skiptir máli, þess vegna ber okkur að tryggja að þau hafi aðgang að öruggu, hlýju og uppbyggilegu umhverfi frá upphafi. Það er einfaldlega óásættanlegt að árið 2026 sé ekki tryggt að öll börn fái leikskólapláss á þeim tíma sem foreldrar þurfa á því að halda. Vandinn er vel þekktur, en viðbrögðin hafa ekki verið nægilega ákveðin. Ef vilji er fyrir hendi er hægt að bregðast hratt við. Með uppbyggingu vandaðra einingahúsa má leysa bráðan húsnæðisvanda margra leikskóla og tryggja að fleiri börn fái pláss án þess að fórna gæðum. Þetta er ekki flókið – þetta snýst um forgangsröðun. En við þurfum líka að horfa lengra fram á veginn. Flokkur fólksins boðar heimgreiðslur til foreldra Markmiðið er að tryggja leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Þar til því markmiði er náð þarf raunverulegur stuðningur að vera til staðar fyrir fjölskyldur. Flokkur fólksins ætlar að koma á heimgreiðslum þannig að foreldrar sem bíða eftir leikskólaplássi geti brúað bilið án þess að fórna fjárhagslegu öryggi sínu. Við þurfum einnig að hugsa út fyrir hefðbundnar lausnir. Það er ekkert sem segir að leikskólar þurfi alltaf að vera reknir á einn ákveðinn hátt. Flokkur fólksins styður að fyrirtæki getirekið leikskóla fyrir börn starfsfólks. Það myndi bæði auka framboð á leikskólaplássum í almenna kerfinu og auðvelda daglegt líf fjölskyldna. Þess vegna þarf að tryggja raunverulegt val foreldra. Kostnaður ætti ekki að vera mismunandi eftir því hvort barn er hjá dagforeldri eða á leikskóla. Til að það verði að veruleika þarf að hækka niðurgreiðslur til dagforeldra og tryggja jafnræði milli úrræða. Þetta snýst um hvaða mál viðsetjum í forgang. Börn og fjölskyldur þeirra eiga ekki að sitja á hakanum. Vandinn er þekktur og við vitum að lausnirnar eru til. Setjum barnafjölskyldur í forgang. Höfundur skipar fjórða sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar