Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Kristján Már Unnarsson skrifar 23. apríl 2026 14:14 Reimar Jensson er vaktstjóri í öryggisleitinni í Leifsstöð. Egill Aðalsteinsson Flugfarþegar sem sjá handfarangur sinn fara í gegnum öryggisskoðun á Keflavíkurflugvelli átta sig fæstir á því að starfsmennirnir sem rýna í innihaldið sitja á allt öðrum stað í flugstöðinni. Sömu starfsmenn skoða einnig hvað leynist í stóru töskunum sem farþegar innrituðu.
Í kvöldfréttum Sýnar og þætti Flugþjóðarinnar um Keflavíkurflugvöll kynnumst við því sem gerist í bakrýmum flugstöðvarinnar sem farþegar sjá yfirleitt ekki, meðal annars vopnaleitinni. Hún er það fyrsta sem venjulega mætir farþegum eftir innritun í flug. Farþegar skila af sér handfarangri til gegnumlýsingar og ganga svo sjálfir í gegnum slíkt tæki. Hluti farþega lendir í úrtaksleit. Þá er þreifað á fólki.Egill Aðalsteinsson Það eru ekki aðeins flugfarþegar sem þurfa að fara í gegnum öryggisleit á Keflavíkurflugvelli. Varningur þjónustuaðila, meira að segja bjórkútarnir fyrir veitingastaðina, er gegnumlýstur áður en honum er hleypt inn á öryggissvæðið. Öryggisleitin kallar á mikinn mannskap. „Við erum 150 núna yfir veturinn en á sumrin erum við um það bil 200 til 250 manns, sem vinna hérna á sumrin,“ segir Reimar Jensson, vaktstjóri í öryggisleit Keflavíkurflugvallar, hér í sjónvarpsfréttinni: Reyndar sjá farþegar bara hluta starfsmanna öryggisleitar. Í rými baka til situr hópur fólks við tölvuskjái að skoða innihaldið í töskunum. -En hverju er helst verið að leita að? „Bara einhverju sem ógnar fluginu sjálfu. Sprengjum og hættulegum efnum, vopnum,“ svarar Reimar. Starfsmenn öryggisleitar rýna inn í gegnumlýstar töskur.Egill Aðalsteinsson Starfsmennirnir í bakrýminu fylgjast einnig með stóru töskunum sem farþegar innrituðu en þær eru gegnumlýstar á færiböndunum. -En hvað er það sem farþegar helst klikka á að reyna að koma í gegnum öryggisleitina? „Vökvi til dæmis, sem er yfir 100 millilítra. Hann má ekki fara í gegn hérna. Hnífar og verkfæri sem eru of stór eða of beitt til að fara í gegn.“ Innritaður farangur er gegnumlýstur á töskufæriböndum.Egill Aðalsteinsson Hluti farþega lendir í úrtaksleit og þá er þreifað á fólki. Er fólk ekki viðkvæmt fyrir því? „Nei, nei. Flestir taka þátt og taka vel í þetta. Sumir skilja þetta ekki en það er bara partur af þessu,“ svarar Reimar. Það á raunar enginn hlutur að sleppa inn án þess að fara í tékk. Aðföng fyrir sölubúðir og veitingastaði fara einnig í gegnum öryggisleit. Þannig fylgjumst við með því þegar bjórkútum er rennt inn í gegnumlýsingartæki. Gerry Nastor flugverndarstarfsmaður ekur bjórkútum inn í gegnumlýsingartæki.Egill Aðalsteinsson Starfsmenn flugvallarins sem og áhafnir flugvéla fara í gegnum öryggisskoðun í sérstökum starfsmannahliðum. Allir þurfa að lúta reglunum. „Og það eru sumir sem gera það ekki. Við höfum neitað fólki að komast í gegn,“ segir Rizza Katrín Thomasdóttir flugverndarstarfsmaður. Rizza Katrín Thomasdóttir er flugverndarstarfsmaður í starfsmannahliði á Keflavíkurflugvelli.Egill Aðalsteinsson „Sumt fólk er bara með stæla eða er ekki að fylgja reglum. Það er bara, því miður, höfum við neitað fólki að koma í gegn,“ segir Rizza Katrín. Fjallað er um Keflavíkurflugvöll í nítjánda þætti Flugþjóðarinnar. Áskrifendur geta séð alla þættina hvenær sem er á streymisveitunni Sýn+. Í kynningarstiklu má sjá dæmi um efni þáttanna sjö í þriðju seríu Flugþjóðarinnar:
Flugþjóðin Keflavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Öryggi á ferðamannastöðum Tengdar fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt, sérstaklega ef það er myrkur,“ svarar Jón Grétar Herjólfsson, rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar, og hlær þegar við spyrjum um mikilvægi flugbrautaljósanna í rekstri vallarins. Flugmennirnir treysta á ljósadýrðina til að hitta á réttan stað. 14. apríl 2026 21:54 Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Isavia hefur frestað áformum um að bæta við þriðju flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli vegna kostnaðar. Þá hafa hugmyndir um að taka aflagða flugbraut í notkun á ný verið slegnar út af borðinu. 8. apríl 2026 22:00 „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Afísing flugvéla er einhver þýðingarmesti öryggisþáttur flugsins í vetrarveðrum eins og núna ganga yfir landið. Afísingarsérfræðingur á Keflavíkurflugvelli segir þá sem annast verkið vel meðvitaða um hvað sé í húfi. 23. mars 2026 22:14 Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar. 10. febrúar 2026 22:33 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira
„Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt, sérstaklega ef það er myrkur,“ svarar Jón Grétar Herjólfsson, rekstrarstjóri raftæknideildar Keflavíkurflugvallar, og hlær þegar við spyrjum um mikilvægi flugbrautaljósanna í rekstri vallarins. Flugmennirnir treysta á ljósadýrðina til að hitta á réttan stað. 14. apríl 2026 21:54
Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Isavia hefur frestað áformum um að bæta við þriðju flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli vegna kostnaðar. Þá hafa hugmyndir um að taka aflagða flugbraut í notkun á ný verið slegnar út af borðinu. 8. apríl 2026 22:00
„Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Afísing flugvéla er einhver þýðingarmesti öryggisþáttur flugsins í vetrarveðrum eins og núna ganga yfir landið. Afísingarsérfræðingur á Keflavíkurflugvelli segir þá sem annast verkið vel meðvitaða um hvað sé í húfi. 23. mars 2026 22:14
Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar. 10. febrúar 2026 22:33