Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. apríl 2026 10:46 Robbie Fowler þekkir vel að bera treyju númer 9 hjá Liverpool. Hann hefur trú á því að Alexander Isak takist að snúa við blaðinu eftir strembna byrjun. Vísir/Getty Liverpool-goðsögnin Robbie Fowler vonast til að Svíinn Alexander Isak rétti úr kútnum á síðari hluta tímabilsins á Englandi. Hann er þess fullviss að liðið nái Meistaradeildarsæti í lok móts.
Engan stuðningsmann Liverpool þarf að kynna fyrir Robbie Fowler, sem er gjarnan kallaður Guð í Bítlaborginni. Hann skoraði 183 mörk fyrir félagið milli 1993 og 2002 og aftur milli 2005 og 2007. Hann þekkir að klæðast treyju númer níu hjá félaginu sem hefur virst þung á herðum Alexanders Isak sem hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir komu fyrir metfé frá Newcastle. „Hann hefur átt í erfiðleikum í ár hvað varðar form og fótbrotið. Hann hefur ekki sýnt samskonar frammistöðu og hjá Newcastle,“ segir Fowler í samtali við Sýn Sport og Vísi. „En það er enginn vafi á því að hann er úrvalsleikmaður. Það má segja að verðið sem Liverpool greiddi fyrir hann hafi ekki verið honum til framdráttar,“ „En leikmaðurinn ákveður ekki verðið heldur félögin. Það getur í raun haft áhrif á frammistöðu leikmannsins. En ég myndi ráðleggja honum að gleyma tölunum og vera sá leikmaður sem við sáum leika með Newcastle,“ segir Fowler. Fowler raðaði inn mörkum fyrir Liverpool á tíunda áratug tuttugustu aldar.David Gadd/Sportsphoto/Allstar via Getty Images Framherjar þurfa þjónustu Hann telur að Isak þurfi að stíga upp í fjarveru Hugo Ekitiké sem verður frá langt fram á næstu leiktíð vegna hásinarslita. Þeir Isak og Ekitiké hafi hins vegar ekki fengið þá þjónustu sem þeir eigi skilið frá skapandi leikmönnum liðsins. „Það er mikilvægt að fá leikmenn í kringum framherjana svo menn fái þau tækifæri sem þeir þarf. Hver er annars tilgangurinn með því að semja við þá?“ „Hvers vegna að verja stórfé í þá ef þeir fá ekki boltann inn í teiginn? Framherjar skora ekki mörk nema þeir fái þjónustu frá öðrum leikmönnum. Ef þeir fá það ekki er lítið á því að græða,“ segir Fowler. Telur að Liverpool lendi í þriðja sæti Liverpool hefur átt erfitt ár og óhætt að segja að titilvörn liðsins hafi ekki gengið vel. Töluverð pressa er á Arne Slot, þjálfara liðsins, sem verður að ná Meistaradeildarsæti í vor. Nú er markmiðið að ná Meistaradeildarsæti. Ertu bjartsýnn á að liðið nái því markmiði? „Ég er hóflega bjartsýnn. Kannski er ég að setja mig á háan hest, en form liðsins undanfarið hefur ekki verið upp á sitt besta. Það sem Liverpool þarf, og það sem skiptir máli svo þeir nái sínu besta og hefur sannast í áranna rás er að þeir eiga að ná úrslitum í samræmi við getu liðsins,“ „Ég tel að þeir muni ná þeim úrslitum. Ég tel að þeir hafni í þriðja sæti,“ segir Fowler. Töluvert lengra viðtal var tekið við Fowler sem má sjá í heild sinni í spilaranum að neðan. Einnig má hlusta á það í Tal-spilaranum að ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum í þættinum Besta sætið. Klippa: Robbie Fowler fer í saumana á vandræðum Liverpool
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira