Lífið samstarf

„Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Lauf­ey segir Hag­kaup til­búið í björtustu dagana

Hagkaup
Verslanir Hagkaups hafa síðustu daga fyllst af litríkum sumarleikföngum, útivistarvörum, reiðhjólum, hjólreiðavörum, grillvörum og öllu því sem fylgir því að taka á móti sumrinu.
Verslanir Hagkaups hafa síðustu daga fyllst af litríkum sumarleikföngum, útivistarvörum, reiðhjólum, hjólreiðavörum, grillvörum og öllu því sem fylgir því að taka á móti sumrinu.

Það er ákveðin tilfinning sem fylgir því þegar sumarið lætur loksins sjá sig á Íslandi. Dagarnir lengjast, grillin fara í gang og fjölskyldur og vinahópar byrja að plana samverustundir utandyra. Í verslunum Hagkaup er sú stemning þegar mætt og meira til.

„Við finnum alltaf mikla gleði þegar þessi tími árs gengur í garð. Fólk er tilbúið að njóta, hitta sitt fólk og gera vel við sig. Þá viljum við vera staðurinn þar sem allt er tilbúið fyrir sumarið,“ segir Eva Laufey Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups en verslanirnar hafa síðustu daga fyllst af litríkum sumarleikföngum, útivistarvörum, reiðhjólum, hjólreiðavörum, grillvörum og öllu því sem fylgir því að taka á móti sumrinu af krafti.

Hjólatíminn hafinn

Með sumrinu eykst áhugi landsmanna á hjólreiðum og útiveru og segir Eva Hagkaup leggja mikla áherslu á þann flokk.

„Við erum með mikið úrval af reiðhjólum fyrir bæði börn og fullorðna ásamt hjálmum, lásum, pumpum og öðrum fylgihlutum. Það er alltaf gaman þegar fólk fer að taka hjólin fram aftur og njóta þess að hreyfa sig úti í góða veðrinu.“

Fyrstu grillkvöldin alltaf sérstök

Að sögn Evu er fátt sem toppar fyrsta grillkvöld sumarsins. „Það er eitthvað sérstakt við að taka grillið fram aftur, finna grillilminn og setjast niður með góðum mat í góðum félagsskap. Verslanir okkar eru nú fullar af ljúffengu grillkjöti, fersku meðlæti, salötum og öllu sem þarf til að gera kvöldið bæði einfalt og skemmtilegt.“

Hún segir viðskiptavini sækjast í bæði klassíkina og nýjar hugmyndir yfir sumarið.

„Sumir vilja góðan hamborgara eða marinerað kjöt á grillið, aðrir vilja prófa eitthvað nýtt. Við leggjum áherslu á fjölbreytt úrval þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi.“

Leikur, gleði og fjölskyldustundir

En sumarið snýst ekki bara um mat. „Það er ekkert skemmtilegra en að fara út að leika á sumrin, fjölskyldur saman í garðinum og fólk að njóta íslenska sumarsins þegar það gefst. Þess vegna erum við með mikið úrval af sumarleikföngum, boltum, vatnsleikja leikföngum og alls konar skemmtun fyrir bjarta daga.“

Allt á einum stað fyrir sumarið

Eva segir markmiðið einfalt: að gera sumarið aðeins auðveldara og skemmtilegra.

„Við viljum að fólk geti komið til okkar og fundið allt sem þarf fyrir sumarið á einum stað. Hvort sem það er fyrir grillveislu, hjólatúr, ferðalag, leik í garðinum eða notalegt kvöld á pallinum.“

Og ef marka má stemninguna í verslunum Hagkaups er eitt ljóst: Sumarið er mætt. Úrvalið má skoða inn á www.hagkaup.is auk þess er úrvalið mun meira í verslunum Hagkaups, sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.