Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Aron Guðmundsson skrifar 21. apríl 2026 12:30 Ægir Þór Steinarsson, leikmaður Íslandsmeistara Stjörnunnar, varpaði pressunni yfir á Tindastól fyrir úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar sem hefst í kvöld. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls segir það klókt hjá honum. Vísir/Samsett Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, segir það klókt hjá Ægi Þór Steinarssyni, leikmanni Stjörnunnar að varpa pressunni yfir á Tindastól fyrir einvígi liðanna í undanúrslitum Bónus deildarinnar sem hefst í kvöld í Síkinu á Sauðárkróki.
Ægir Þór verður ekki meira með Stjörnunni á yfirstandandi tímabili eftir að hafa olnbogabrotnað í leik gegn KR á dögunum en í viðtali við íþróttadeild fyrir helgi sagði hann að það yrði „skandall“ ef Tindastóll vinnur ekki einvígið gegn Stjörnunni í ljósi þess að liðið hefur misst tvo landsliðsmenn, téðan Ægi og Orra Gunnarsson, í meiðsli. „Ægir er auðvitað bara að gera sitt til að reyna búa til eitthvað sjónarhorn, sögulínu um að þeir séu litla liðið og eigi að geta spilað pressulausir og frjálsir,“ segir Arnar, þjálfari Tindastóls í samtali við Vísi fyrir fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í kvöld. „Það er bara klókt hjá honum en ég held að þeir sem verða í búning hjá Stjörnunni í kvöld eru ekki á því að þeir eigi ekki að geta unnið okkur. Þetta er einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við.“ En þið komið inn sem líklegra liðið eða hvað? „Það er eitthvað sem að þið bara ræðið um. Við vitum hvað við ætlum að gera. Við vitum fyrir hvað við stöndum. Vitum á hvaða forsendum við viljum að leikurinn verði spilaður. Það er það sem við höfum stjórn á og ætlum að leggja áherslu á í kvöld.“ Ljótt að sjá Ægi meiðast Arnar og Ægir eru góðir vinir og finnur sá fyrrnefndi til með Ægi og því sem hann hefur mátt ganga í gegnum undanfarna daga. Ægir Þór var sárþjáður Vísir/Anton „Það var ljótt að sjá þetta,“ segir Arnar um meiðsli Ægis. „Ég vorkenni honum að hafa lent í þessu. Erfitt að segja hvaða áhrif þetta mun hafa. Hilmar Smári verður meira með boltann, mun taka meira til sín. Örugglega sama með Pablo Bertoni, Giannis Agravanis og Luka Gasic. Þeir bara taka meira á sig. Það er ekki eins og þetta sé eins manns lið.“ „Eitt grófasta lið deildarinnar“ Á hvernig einvígi áttu von á móti þessu Stjörnuliði? „Það er alveg á hreinu að þeir verða fastir fyrir. Þeir eru tölfræðilega séð eitt grófasta liðið í deildinni. Við þurfum að vera tilbúnir í að spila í gegnum það. Ég reikna með því að þeir reyni að spila hratt. Þeir eru að reyna skjóta mikið af þristum. Það er eitthvað sem við þurfum að vera klárir í að eiga við og þá þurfum við að frákasta boltanum vel. Ég held að þetta séu lyklarnir sem skipta miklu máli.“ Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari ríkjandi Íslandsmeistara Stjörnunnar, var eitt sinn þjálfari Tindastóls og sömuleiðis var Arnar, núverandi þjálfari Tindastóls, eitt sinn þjálfari Stjörnunnar. Vísir / Diego Rúm vika hefur liðið frá síðasta leik Tindastóls sem sópaði ÍR úr leik í átta liða úrslitunum og ríkir tilhlökkun fyrir norðan fyrir leik kvöldsins. „ Langt síðan að við spiluðum síðast. Gleði að fá að halda áfram í partýinu,“ segir Arnar sem pælir lítið í bilinu milli leikja hjá liði sínu. „Þetta er bara svona. Skiptir eiginlega ekki máli að velta því fyrir sér. Það er bara áfram gakk. Við erum búnir að æfa vel og hvílast. Erum klárir í bátana. Við höfum tekið fimm eða sex æfingar síðan að einvígið gegn ÍR kláraðist. Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í úrslitaeinvíginu gegn Tindastól í oddaleik sem fram fór í Síkinu á síðasta tímabili. Stólarnir eiga harma að hefna og mikil stemning er á Sauðárkróki fyrir einvíginu gegn Garðbæingum. Stjarnan tók með sér bikarinn úr Síkinu í fyrra. Vísir/Hulda Margrét „Ég held það sé bara tilhlökkun hjá fólkinu okkar gagnvart því að fá að koma á leik. Þau hafa verið frábær fyrir okkur í allan vetur og staðið þétt við bakið á okkur. Það verður engin breyting þar á í kvöld. Allir leikir í vetur hafa verið vel sóttir og myndast mikil stemning. Það hefur aukist eftir því sem líður á úrslitakeppnina.“ Leikur eitt í undanúrslitaeinvígi Tindastóls og Stjörnunnar í Bónus deild karla í körfubolta hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Upphitun með sérfræðingum hefst hálftíma fyrir leik.
Bónus-deild karla Tindastóll Stjarnan Mest lesið KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Íslenski boltinn Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Körfubolti Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Fótbolti Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Fótbolti Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Íslenski boltinn Spjótin standa að Jóni Degi og Freyr stígur inn á milli Fótbolti Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Enski boltinn Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Íslenski boltinn Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Sjá meira