„Í kvöld varð ég að stíga aðeins upp“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 20. apríl 2026 21:25 Amandine Toi var gríðarlega öflug í kvöld. Vísir / Hulda Margrét Amandine Toi átti stórkostlegan leik í kvöld þegar Haukar tóku forystu í einvígi sínu gegn Keflavík með fjórtán stiga sigri 85-71. Amandine Toi skoraði 34 stig í leiknum og hún ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik. „
Við vissum að þetta yrði erfitt“ sagði Amandine Toi eftir sigurinn í kvöld. Haukar spiluðu án Krystal Freeman í kvöld og gerði það sigurinn enn sætari fyrir vikið. „Við vissum ekki hvort hún yrði með okkur alla vikuna svo þetta snérist bara um að koma með þetta baráttu hugarfar og þjappa okkur saman og spila saman eins og ein heild án hennar“ „Þegar hún er ekki með þá erum við með færri fráköst og færri tækifæri inn í teig og Catherine Masa steig upp í hennar fjarveru“ Amandine Toi skoraði 34 stig í kvöld og fannst henni vera ákveðin ábyrgð á sér í kvöld með Krystal Freeman fjarverandi. „Já auðvitað, hún er búin að vera hjálpa mér allt tímabilið á meðan allir voru kannski meira að einbeita sér að mér og í kvöld varð ég að stíga aðeins upp en það stigu allar upp í liðinu og þær hjálpuðu mér mikið“ Varnarleikur Hauka í kvöld var frábær og Keflavík var með 20 tapaða bolta. „Við vitum að okkar styrkleiki er pressan okkar. Þær eru mjög gott lið og mjög gott skyndisóknarlið svo við vissum að ef við myndum halda stöðugleika og hægja á Keishana [Washington] þá yrði auðveldara fyrir okkur að vinna þennan leik“ Það fer mikil orka í varnarleikinn sem Emil Barja vill láta lið sitt spila. „Það er erfitt og tekur mikla orku en eins og þið sjáið þá erum við að rúlla liðinu vel og á mörgum leikmönnum svo við fáum að hvílast og halda mómentum. Alltaf þegar þú kemur inn fersk þá getur þú sett meiri pressu svo það er klárlega styrkleiki“ Haukar fengu tólf daga hvíld frá síðasta leik en það var ekki að sjá neitt ryð á liði Hauka í kvöld. „Þetta var ekki svo slæmt. Við höfum verið að æfa virkilega vel og æft stíft alla daga svo okkur leið ekkert endilega eins og við höfum fengið tólf daga hvíld og þess vegna vorum við í formi“ „Við vissum líka að þær fóru í gegnum fimm leikja seríu og við vildum pressa þær frá byrjun því við vissum að þær væru líklega þreyttari en við erum“ sagði Amandine Toi.
Haukar Körfubolti Bónus-deild kvenna Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Sjá meira