Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. apríl 2026 22:33 Alejandro Garnacho fann sig ekki gegn sínum gömlu félögum í Manchester United. getty/James Gill Alejandro Garnacho heillaði sérfræðinga Sunnudagsmessunnar ekki með innkomu sinni í leik Chelsea og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Garnacho byrjaði á varamannabekknum í leiknum í fyrradag en kom inn á fyrir Estevao á 16. mínútu. Fátt gekk upp hjá Argentínumanninum gegn sínu gamla liði eins og farið var yfir í Sunnudagsmessunni. „Ég held að hann sé ekki í uppáhaldi hjá neinum nema fjölskyldunni. Það eru ekki margir stuðningsmenn Garnachos,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason. Klippa: Messan - umræða um Garnacho „Þetta byrjaði allt þarna. [Diogo] Dalot var gjörsamlega með hann í vasanum og svo óheppilega fyrir Garnacho var hann beint fyrir framan stuðningsmenn United. Þeir fögnuðu öllum mistökum. Síðan í seinni hálfleik átti hann að vera með stuðningsmenn Chelsea sér við hlið en þeir voru orðnir ansi pirraðir á honum og kannski skiljanlega.“ Kjartan Henry sagði að lítil sannfæring hefði verið í aðgerðum Garnachos gegn United. „Hann hafði enga trú á þessu. Ef þið horfið á Chelsea-áhorfendurna fyrir aftan eru þeir farnir að góla á sinn mann. Þetta var hræðileg innkoma. Þetta var hauskúpuleikur hjá Garnacho,“ sagði Kjartan Henry. Hefur fengið slæmar ráðleggingar Arnar Gunnlaugsson tók svo við boltanum og sagði að þeir sem standa Garnacho næst væru kannski ekki að hjálpa honum mikið. „Hann hefur greinilega hæfileika, annars hefði hann ekki verið hjá United og Chelsea. En þetta er klassískt dæmi um leikmann sem fær slæmar ráðleggingar. Hann er alltof aggresívur í fjölmiðlum og gefur frá sér þessa áru að vera hrokafullur. Svo getur vel verið að þetta sé hinn vænsti drengur,“ sagði Arnar. „Þú setur svo mikla pressu á sjálfan þig. Svo byrjarðu að spila þessa leiki og ef þú ert ekki að skora þolir þig enginn. Þú átt ekkert kredit inni hjá einum einasta stuðningsmanni. Þetta er mjög sorglegt. Munið þið eftir hjólhestaspyrnumarkinu hans í fyrra? Gaur sem gerir svona mark, það eru hæfileikar í svona strák og þú vilt sjá hann ná lengra, þroskast og dafna. En því miður virðist hann vera að fara í hina áttina.“ Chelsea keypti Garnacho fyrir um fjörutíu milljónir punda síðasta sumar. Hann hefur leikið 39 leiki fyrir Lundúnaliðið og skorað átta mörk en aðeins eitt í ensku úrvalsdeildinni. Umræðuna úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Chelsea FC Messan Tengdar fréttir Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Þrátt fyrir að Chelsea hafi tapað fjórum deildarleikjum í röð án þess að skora finnur knattspyrnustjórinn Liam Rosenior fyrir fullum stuðningi frá eigendum félagsins. 20. apríl 2026 18:01 „Hann var grátandi í hálfleik“ Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði frá því að Brasilíumaðurinn Estevao hefði verið í tárum í hálfleik eftir að hafa neyðst til að fara af velli vegna meiðsla snemma í tapi liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöldið. 19. apríl 2026 22:02 Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og mörkin úr fjórum þeirra má finna hér fyrir neðan, ásamt magnaðri markvörslu sem hélt einum leiknum markalausum. 19. apríl 2026 10:04 Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Manchester United sótti þrjú stig á Stamford Bridge eftir sigur á Chelsea í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar. 18. apríl 2026 20:55 Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Fleiri fréttir Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Sjá meira
Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Þrátt fyrir að Chelsea hafi tapað fjórum deildarleikjum í röð án þess að skora finnur knattspyrnustjórinn Liam Rosenior fyrir fullum stuðningi frá eigendum félagsins. 20. apríl 2026 18:01
„Hann var grátandi í hálfleik“ Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði frá því að Brasilíumaðurinn Estevao hefði verið í tárum í hálfleik eftir að hafa neyðst til að fara af velli vegna meiðsla snemma í tapi liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöldið. 19. apríl 2026 22:02
Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og mörkin úr fjórum þeirra má finna hér fyrir neðan, ásamt magnaðri markvörslu sem hélt einum leiknum markalausum. 19. apríl 2026 10:04
Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Manchester United sótti þrjú stig á Stamford Bridge eftir sigur á Chelsea í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar. 18. apríl 2026 20:55