Svartir blettir á upplýsingarétti almennings Kristín I. Pálsdóttir skrifar 20. apríl 2026 06:32 Sögulega hefur þjónusta við fólk með áfengis- og vímuefnavanda verið jaðarsett innan heilbrigðis- og velferðarkerfisins. Stórum hluta hennar hefur verið sinnt af félagasamtökum og öðrum aðilum í þriðja geiranum, sem hefur leitt til þess að kröfur um gagnsæi, gæðaviðmið og eftirlit hafa ekki verið jafn skýrar og í formlegri opinberri heilbrigðisþjónustu. Þetta endurspeglast einnig í nýlegum opinberum skýrslum sem benda á að enn skorti á menntun og sérþjálfun starfsfólks, heildstæð viðmið, skilgreinda gæðastaðla, samhæfð gögn og öflugt eftirlit á þessu sviði. Rótin óskaði í febrúar eftir afriti af nýlegum samningum Sjúkratrygginga Íslands við SÁÁ. Eftir nokkur samskipti við stofnunina og úrskurðarnefnd um upplýsingamál fékk Rótin samninginn afhentan. Þá brá svo við að öll helstu grundvallaratriði samningsins höfðu verið afmáð með vísun í hagsmuni SÁÁ. Afmáðar höfðu verið upplýsingar um verð, þjónustumagn, greiðsluforsendur og kostnaðaruppbyggingu þjónustu og einnig aðrar efnislegar forsendur samningsins. Mikilvægt er að slíkar upplýsingar séu uppi á borðum þegar opinberri þjónustu er útvistað. Það á ekki aðeins við um fjárhag heldur líka um meðferðarstarfið sjálft. Þegar strokað er yfir upplýsingar um lengd meðferðar, umfang úrræða og önnur grunnviðmið þjónustunnar minnkar gagnsæi gagnvart notendum, aðstandendum og fagfólki. Samkeppnisrökin hljóma líka fjarri lagi. Samkvæmt yfirliti um rekstrargrunn í fjárlögum fær SÁÁ 2.048 milljónir króna árið 2026. Á sama tíma fær Hlaðgerðarkot/Samhjálp 281 milljón og Krýsuvík 271 milljón. Hlutur SÁÁ er því 79% af því opinbera fé sem þar er varið til þessara þriggja aðila á sviði fíknimeðferðar. SÁÁ er eini aðilinn sem rekur fráhvarfsmeðferðarspítala á Íslandi. ÍVegvísi vegna þjónustu við fólk með fíknivanda er að finna upplýsingar um skiptingu þjónustu milli heilsugæslu, SÁÁ og Landspítala. Þar sést að skipulagið byggir á verkaskiptu þjónustuflæði þar sem fólki er vísað úr heilsugæslu til SÁÁ, sem sinnir almennt fráhvarfsmeðferð og framhaldsmeðferð, eða til Landspítala, þar sem afmarkaður hópur með alvarlegan geðrænan samhliða vanda fær þjónustu. Það styður illa þá hugmynd að hér sé um hefðbundinn samkeppnismarkað að ræða. Þegar einn aðili fær svo afgerandi stærstan hlut opinbers fjár á þessu sviði er erfitt að taka mjög alvarlega almennar vísanir til þess að birting grunnupplýsinga um samninga muni raska eðlilegri samkeppnisstöðu. Hér er ekki verið að ræða hefðbundinn markað þar sem jafnræði ríkir milli margra sambærilegra keppinauta heldur líkist hann fremur ráðandi stöðu eins aðila í bland við verkaskiptingu opinberra verkefna. SÁÁ er á almannaheillaskrá Skattsins og aðildarfélag Almannaheilla – samtaka þriðja geirans - og lúta siðareglumþeirra sem leggja áherslu á gagnsæi og að áreiðanlegar upplýsingar um fjárhag og rekstur skuli vera skýrar og aðgengilegar. Þegar horft er til þessara siðareglna er erfitt að samræma þær við þær hindranir gegn upplýsingagjöf sem SÁÁ hefur tamið sér eins og þau séu hagnaðardrifið fyrirtæki. Á undanförnum árum hefur farið fram víðtæk vinna við stöðumat, greiningu og stefnumótun í málaflokki fólks sem notar vímuefni. Þar kemur fram að kerfið taki um of mið af rekstraraðilum (e. programme-centred care) fremur en notendum og að þörf sé á að þróa það í átt að notendamiðaðri þjónustu (e. patient-centred care). Jafnframt er bent á skort á menntuðu og sérþjálfuðu starfsfólki. Þess vegna er öfugsnúið að upplýsingar um hlutfall starfsstétta í starfsemi SÁÁ hafi verið afmáðar. Mönnun, fagþekking og samsetning teyma skipta máli fyrir gæði meðferðar og slíkar upplýsingar eiga því augljóst erindi við almenning, notendur þjónustunnar og fagfólk á sviðinu. Í stærra samhengi er þetta líka viðvörun um takmarkanir á gagnsæi um ráðstöfun opinberra fjármuna. Ef verkefnum heilbrigðis- og velferðarkerfis er í auknum mæli útvistað, til einkaaðila eða þriðja geirans, þarf að standa vörð um þær kröfur um gagnsæi og aðhald sem almenningur gerir réttilega til opinberrar þjónustu. Þá vaknar líka spurning um hlutverk Sjúkratrygginga Íslands: eiga þær að verja upplýsingarétt almennings og gagnsæi um ráðstöfun almannafjár, eða verja illa rökstudda leyndarhyggju í útvistaðri velferðarþjónustu sem fjármögnuð er með opinberu fé? Hlutverk hins opinbera hlýtur að vera að tryggja að sú starfsemi sem rekin er fyrir almannafé lúti skýrum reglum, raunverulegu eftirliti og gagnsæi gagnvart almenningi og notendum þjónustunnar. Að lokum er rétt að minna á að gagnkvæmt traust er grundvöllur heilbrigðra sambanda. Ef SÁÁ vill að almenningur, skattgreiðendur, stuðningsaðilar samtakanna og notendur þjónustunnar treysti þeim, þá verða samtökin líka að treysta almenningi fyrir eðlilegum upplýsingum um fjárhag, samninga og fyrirkomulag þeirrar meðferðar sem þau veita. Gagnsæi á ekki að vera ógn fyrir aðila sem starfa í þágu almennings. Það á að vera sjálfsagður hluti af ábyrgri starfsemi, sérstaklega ef hún er kostuð af almannafé. Rótin hefur kært afgreiðslu sjúkratrygginga á beiðni um aðgang að samningnum við SÁÁ og kæruna má finna á vef Rótarinnar, https://rotin.is/. Höfundur er talskona Rótarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkn Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun