„Fínt fyrir okkur en kannski ekki jafn fínt fyrir Englendinga“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. apríl 2026 10:01 Cecilía Rán veltir sér ekkert upp úr því að þurfa að veltast um í drullunni á Laugardalsvelli, en vonar að England lendi í vandræðum með það. vísir Cecilía Rán Rúnarsdóttir segir stelpurnar okkar hafa lært mikið af síðasta leik gegn Englandi og vonast eftir einhverju sérstöku þegar liðin mætast á gulleitum Laugardalsvelli í dag.
Ríkjandi Evrópumeistarar Englands eru komnir hingað til lands eftir sigur gegn heimsmeisturum Spánar á þriðjudag. Ísland vann Úkraínu 1-0 á sama tíma, í leik sem fór fram á frekar gulleitum Laugardalsvelli. Heimsklassaleikmenn en gult gras gæti hjálpað Cecilía kvartar ekki undan aðstæðum en vonar að Englendingar muni gera það. „Grasið er bara fínt miðað við apríl á Íslandi. Það er kannski erfitt að hafa grasið fullkomið þegar veðrið er svona misjafnt. Við gerðum samt bara það besta úr því og þetta var fínt fyrir okkur en kannski ekki jafn fínt fyrir Englendinga sem voru að spila fyrri leikinn á Wembley.“ England býr yfir einu besta landsliði heims og vann sannfærandi 2-0 sigur í fyrri leiknum gegn Íslandi. „Þetta eru heimsklassaleikmenn í öllum stöðum en við erum með góða leikmenn í okkar liði og ef við spilum bara sem lið þá gerum við vonandi eitthvað sérstakt.“ Þurfa að loka á fyrirgjafir Bæði mörk Englands í fyrri leik liðanna voru skoruð eftir fyrirgjafir, þannig að það er kannski augljóst hvað þarf að laga? „Þær vilja auðvitað mikið komast í cut-back stöður og við erum að vinna mikið í því. Við erum búnir að fara yfir fyrir leikinn og sáum hvað við getum bætt. Og auðvitað þegar við fáum á okkur mörk þá getum við bætt það.“ Mættu svekktar til landsins Cecilía er leikmaður Inter á Ítalíu, eins og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Telma Ívarsdóttir. Þær stöllur mættu frekar svekktar í þetta landsliðsverkefni eftir tvö slæm töp á móti Roma. „Jú við duttum út úr bikarnum í undanúrslitum á móti þeim og svo í síðasta leiknum fyrir landsleikjahlé töpuðum við toppslag á móti Roma. Við verðum bara að hefna okkar á næsta ári.“ Cecilía ræddi við Sýn á Grand Hotel. vísir / sigurjón Fyrsti leikur Inter eftir landsleikjahlé verður svo Íslendingaslagur gegn Genoa, liðinu sem landsliðskonan Birta Georgsdóttir spilar með. „Já það verður erfiður leikur. Genoa verður að vinna alla leiki sem eftir eru til að halda sér uppi. Þær eru í svakalegri botnbaráttu en við verðum líka að vinna þennan leik, þetta verður hörkuleikur.“ Klippa: Cecilía Rán ræðir leikinn gegn Englandi og toppbaráttuna á Ítalíu
Landslið kvenna í fótbolta Ítalski boltinn HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira