Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Freyja Þórisdóttir skrifar 17. apríl 2026 13:52 Frá vinstri, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sálfræðingur og sviðsstjóri hjá embætti landlæknis, Nicola Sturgeon fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrverandi ráðherra, Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Knut Inge Klepp prófessor við næringarfræðideild læknadeildar Háskólans í Osló. Pétur Fjelsted Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, og Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, hlutu Velsældarverðlaunin í dag á Velsældarþinginu sem stendur yfir í vikunni og fer fram í Hörpu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu um verðlaunaafhendinguna og Velsældarþingið en þar segir einnig að verðlaunin séu veitt aðilum sem hafa lagt sitt af mörkum til að efla velsæld í samfélögum sínum og víðar um heiminn. Þau séu veitt í anda þeirrar sýnar að hvetja til lausnamiðaðrar og manngæskulegrar nálgunar sem styður við sjálfbærni og umbreytingu hagkerfa í þágu fólks og náttúrunnar. Rökstuðningur sem fylgir tilkynningunni hljóðar á þennan veg: Á starfstíma sínum sem forsætisráðherrar lögðu þær ríka áherslu á að þróa nýja nálgun í efnahags- og samfélagsmálum þar sem velsæld, lífsgæði og jöfnuður voru sett í forgang. Undir þeirra forystu var unnið að innleiðingu mælikvarða sem taka mið af raunverulegri velferð fólks, auk þess sem lögð var áhersla á lýðheilsu, menntun, félagslegt öryggi og sjálfbæra þróun. Katrín Jakobsdóttir leiddi meðal annars vinnu við að innleiða velsældarvísa í íslenska stjórnsýslu og setti fram stefnu sem beinir sjónum að langtíma lífsgæðum þjóðarinnar. Hún hefur jafnframt gegnt lykilhlutverki á alþjóðavettvangi, meðal annars sem formaður WHO Pan-European Commission on Climate & Health, þar sem hún hefur unnið að því að tengja saman loftslagsmál og lýðheilsu. Nicola Sturgeon var í fararbroddi í framþróun á hagkerfi Skotlands sem leiðandi ríkis í velsæld, meðal annars í gegnum samstarfið Wellbeing Economy Governments (WEGo). Hún lagði áherslu á félagslegt réttlæti, jafnrétti og aðgerðir gegn fátækt, auk þess að þróa stefnumótun sem miðar að því að mæla árangur samfélaga út frá fleiri þáttum en hagvexti einum. Eftir að þær létu af embætti hafa þær báðar látið áfram til sín taka á alþjóðavettvangi, þar sem þær miðla af reynslu sinni og styðja við áframhaldandi þróun velsældarhagkerfa og sjálfbærrar stefnumótunar. Katrín sagði í kjölfar afhendingarinnar að hún væri afar stolt og þakklát að taka við verðlaununum ásamt vinkonu sinni og fyrrverandi samstarfskonu, Nicolu Sturgeon. „Það veitir mér innblástur og von um að fleiri þjóðir tileinki sér þessa sýn á hagsæld og horfi út fyrir hefðbundna mælikvarða eins og landsframleiðslu“ segir Katrín og bætir við að „það sé hennar einlæga sannfæring að velsældarhagkerfið og þau víðtæku gildi sem það standi fyrir eigi að vera leiðarljós okkar inn í réttlátari og sjálfbærari framtíð fyrir okkur öll,“ sagði Katrín. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, voru meðal þeirra sem mættu á Velsældarþingið í Hörpunni en það hófst í gær og klárast í dag.Pétur Fjelsted Hagkerfi mæld út frá áhrifum á hamingju fólks Nicola sagðist sömuleiðis mjög stolt af því að taka við verðlaununum ásamt Katrínu. Þá minntist hún einnig á að hún meti sem svo að hagkerfi geti einungis talist raunverulega farsæl ef þau hafi góð áhrif á heilsu og hamingju fólks. „Ég er afar stolt af því hlutverki sem ríkisstjórn mín í Skotlandi gegndi við að knýja fram þá sýn að setja velsæld í forgang í efnahagsstefnu. Of lengi höfum við verið alin upp við þá hugsun að heilsa og velsæld eigi að lúta í lægra haldi fyrir hagvexti. Ég tel að þessu sé öfugt farið, einu hagkerfin sem geta talist raunverulega farsæl eru þau sem hafa góð áhrif á heilsu og hamingju fólks, um leið og þau tryggja efnislegt öryggi,“ sagði Nicola. „Í heimi sem einkennist af auknum óstöðugleika er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að setja velsæld í forgang,“ sagði hún loks. Harpa Tímamót Ráðstefnur á Íslandi Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Sjá meira
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu um verðlaunaafhendinguna og Velsældarþingið en þar segir einnig að verðlaunin séu veitt aðilum sem hafa lagt sitt af mörkum til að efla velsæld í samfélögum sínum og víðar um heiminn. Þau séu veitt í anda þeirrar sýnar að hvetja til lausnamiðaðrar og manngæskulegrar nálgunar sem styður við sjálfbærni og umbreytingu hagkerfa í þágu fólks og náttúrunnar. Rökstuðningur sem fylgir tilkynningunni hljóðar á þennan veg: Á starfstíma sínum sem forsætisráðherrar lögðu þær ríka áherslu á að þróa nýja nálgun í efnahags- og samfélagsmálum þar sem velsæld, lífsgæði og jöfnuður voru sett í forgang. Undir þeirra forystu var unnið að innleiðingu mælikvarða sem taka mið af raunverulegri velferð fólks, auk þess sem lögð var áhersla á lýðheilsu, menntun, félagslegt öryggi og sjálfbæra þróun. Katrín Jakobsdóttir leiddi meðal annars vinnu við að innleiða velsældarvísa í íslenska stjórnsýslu og setti fram stefnu sem beinir sjónum að langtíma lífsgæðum þjóðarinnar. Hún hefur jafnframt gegnt lykilhlutverki á alþjóðavettvangi, meðal annars sem formaður WHO Pan-European Commission on Climate & Health, þar sem hún hefur unnið að því að tengja saman loftslagsmál og lýðheilsu. Nicola Sturgeon var í fararbroddi í framþróun á hagkerfi Skotlands sem leiðandi ríkis í velsæld, meðal annars í gegnum samstarfið Wellbeing Economy Governments (WEGo). Hún lagði áherslu á félagslegt réttlæti, jafnrétti og aðgerðir gegn fátækt, auk þess að þróa stefnumótun sem miðar að því að mæla árangur samfélaga út frá fleiri þáttum en hagvexti einum. Eftir að þær létu af embætti hafa þær báðar látið áfram til sín taka á alþjóðavettvangi, þar sem þær miðla af reynslu sinni og styðja við áframhaldandi þróun velsældarhagkerfa og sjálfbærrar stefnumótunar. Katrín sagði í kjölfar afhendingarinnar að hún væri afar stolt og þakklát að taka við verðlaununum ásamt vinkonu sinni og fyrrverandi samstarfskonu, Nicolu Sturgeon. „Það veitir mér innblástur og von um að fleiri þjóðir tileinki sér þessa sýn á hagsæld og horfi út fyrir hefðbundna mælikvarða eins og landsframleiðslu“ segir Katrín og bætir við að „það sé hennar einlæga sannfæring að velsældarhagkerfið og þau víðtæku gildi sem það standi fyrir eigi að vera leiðarljós okkar inn í réttlátari og sjálfbærari framtíð fyrir okkur öll,“ sagði Katrín. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, voru meðal þeirra sem mættu á Velsældarþingið í Hörpunni en það hófst í gær og klárast í dag.Pétur Fjelsted Hagkerfi mæld út frá áhrifum á hamingju fólks Nicola sagðist sömuleiðis mjög stolt af því að taka við verðlaununum ásamt Katrínu. Þá minntist hún einnig á að hún meti sem svo að hagkerfi geti einungis talist raunverulega farsæl ef þau hafi góð áhrif á heilsu og hamingju fólks. „Ég er afar stolt af því hlutverki sem ríkisstjórn mín í Skotlandi gegndi við að knýja fram þá sýn að setja velsæld í forgang í efnahagsstefnu. Of lengi höfum við verið alin upp við þá hugsun að heilsa og velsæld eigi að lúta í lægra haldi fyrir hagvexti. Ég tel að þessu sé öfugt farið, einu hagkerfin sem geta talist raunverulega farsæl eru þau sem hafa góð áhrif á heilsu og hamingju fólks, um leið og þau tryggja efnislegt öryggi,“ sagði Nicola. „Í heimi sem einkennist af auknum óstöðugleika er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að setja velsæld í forgang,“ sagði hún loks.
Á starfstíma sínum sem forsætisráðherrar lögðu þær ríka áherslu á að þróa nýja nálgun í efnahags- og samfélagsmálum þar sem velsæld, lífsgæði og jöfnuður voru sett í forgang. Undir þeirra forystu var unnið að innleiðingu mælikvarða sem taka mið af raunverulegri velferð fólks, auk þess sem lögð var áhersla á lýðheilsu, menntun, félagslegt öryggi og sjálfbæra þróun. Katrín Jakobsdóttir leiddi meðal annars vinnu við að innleiða velsældarvísa í íslenska stjórnsýslu og setti fram stefnu sem beinir sjónum að langtíma lífsgæðum þjóðarinnar. Hún hefur jafnframt gegnt lykilhlutverki á alþjóðavettvangi, meðal annars sem formaður WHO Pan-European Commission on Climate & Health, þar sem hún hefur unnið að því að tengja saman loftslagsmál og lýðheilsu. Nicola Sturgeon var í fararbroddi í framþróun á hagkerfi Skotlands sem leiðandi ríkis í velsæld, meðal annars í gegnum samstarfið Wellbeing Economy Governments (WEGo). Hún lagði áherslu á félagslegt réttlæti, jafnrétti og aðgerðir gegn fátækt, auk þess að þróa stefnumótun sem miðar að því að mæla árangur samfélaga út frá fleiri þáttum en hagvexti einum. Eftir að þær létu af embætti hafa þær báðar látið áfram til sín taka á alþjóðavettvangi, þar sem þær miðla af reynslu sinni og styðja við áframhaldandi þróun velsældarhagkerfa og sjálfbærrar stefnumótunar.
Harpa Tímamót Ráðstefnur á Íslandi Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Sjá meira