„Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Smári Jökull Jónsson skrifar 17. apríl 2026 07:00 Miklar endurbætur hafa átt sér stað í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Vísir/Vilhelm Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu er aftur kominn í notkun eftir miklar framkvæmdir síðustu árin. Feneyjatvíæringurinn er þema listaverka í húsinu og hönnuður sem kom að endurbótum segist stoltust af veggfóðrinu.
Umfangsmiklar endurbætur hafa staðið yfir á ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðustu misserin en framkvæmdir hófust haustið 2023. Meðal annars voru brunavarnir hússins uppfærðar með úðakerfi, lagnir endurnýjaðar og aðgengi fyrir hreyfihamlaða bætt. Áætlaður kostnaður við hönnun og framkvæmdir er 336 milljónir en kostnaður við húsgögn og annan búnað liggur ekki fyrir. Í vikunni fundaði ríkisstjórnin í bústaðnum í fyrsta sinn eftir að framkvæmdum lauk. Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu.Vísir/Vilhelm Arkitekt segir að húsið fái nú aftur þann karakter sem það hafði en meðal annars var blómastofa endurbyggð og stækkuð sem áður hafði verið ein mesta prýði ráðherrabústaðsins. „Manni fannst í þessu tilfelli rétt að halda í sál hússins, halda í anda hússins eins og hægt var. Ná fram gömlum frágangi og gömlum efnum,“ sagði Páll Hjaltason arkitekt en hann kom að vinnu við endurbæturnar. Páll Hjaltason arkitekt.Vísir/Vilhelm Feneyjatvíæringurinn er þema verka sem prýða veggi ráðherrabústaðsins en öll listaverkin eru eftir Íslendinga sem sýnt hafa verk sín á hátíðinni. Þar er meðal annars verk eftir Jóhannes Kjarval frá árinu 1930 en Jóhannes var fyrsti Íslendingurinn sem sýndi verk á hátíðinni árið 1960. Þar er einnig verk eftir Hildigunni Birgisdóttur sem sýndi verk sín fyrir tveimur árum. Listaverk eftir Íslendinga sem sýnt hafa verk á Feneyjatvíæringnum prýða veggi ráðherrabústaðsins en hér má meðal annars sjá verk eftir Jóhannes Kjarval og Hildigunni Birgisdóttur.Vísir/Vilhelm Hönnuður sem kom að vinnu við ráðherrabústaðinn segir það hafa verið einstaklega skemmtilegt að fá að kafa ofan í merka sögu hússins. „Að kynnast húsinu og ná í hluti sem voru kannski ekki alveg upp á sitt besta en eru orðnir það í dag. Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt,“ segir Steinunn Sigurðardóttir hönnuður. Af hverju ertu stoltust hér inni? „Ég held að það sé veggfóðrið.“ Steinunn Sigurðardóttir hönnuður kom að endurbótum ráðherrabústaðsins við Tjarnargötu.Vísir/Vilhelm Hvað er það sem gerir þig svona stolta yfir því? „Þetta er ofið efni, í gömlum húsum var þetta þannig og við náðum því eftir langan tíma að finna það en mikið lifandi, undur og ósköp er þetta fallegt.“ Páll segir Íslendinga stolta af því að geta boðið erlendum ráðamönnum í heimsókn. „Mér finnst ótrúlega gaman að hafa komið þessu húsi í fulla og virðulega notkun.“ RáðherrabústaðurinnVísir/Vilhelm Þessi ljósakróna hefur verið í ráðherrabústaðnum frá upphafi.Vísir/Vilhelm Í borðstofunni er gert ráð fyrir að hægt verði að halda á fundi og taka á móti gestum.Vísir/Vilhelm Úr sólskálanum sem var endurbyggður og stækkaður.Vísir/Vilhelm Glæsilegur flygill í ráðherrabústaðnum.Vísir/Vilhelm RáðherrabústaðurinnVísir/Vilhelm Í bústaðnum er aðstaða fyrir lögreglu.Vísir/Vilhelm
Hús og heimili Húsavernd Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira