„Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2026 21:50 Álvaro Arbeloa fagnar frábæru marki Arda Gueler í kvöld. Getty/Stuart Franklin Álvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, ræddi við Movistar+ eftir 4-3 tap gegn Bayern í kvöld þar sem tvö gul spjöld á Camavinga gerðu út um frábæran leik á Allianz Arena.
Real Madrid komst þrisvar yfir en fékk á sig tvö mörk í lokin eftir að hafa orðið manni færri. Kláraðist leikurinn með rauða spjaldinu?: „Það er augljóst, það er ekki hægt að reka leikmann af velli fyrir svona lagað. Dómarinn vissi ekki einu sinni að hann væri með spjald og hann eyðilagði mjög skemmtilegt og jafnt einvígi þegar mest á reyndi og þar með lauk leiknum,“ sagði Arbeloa. „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir. Þetta eru mikil vonbrigði. Okkur fannst þetta vera úrslitaleikur tímabilsins hjá okkur,“ sagði Arbeloa. „Þetta var frábær leikur hjá mínum mönnum og ég vorkenni þeim fyrir þá vinnu sem þeir lögðu á sig. Ég vorkenni líka stuðningsmönnum Madrid sem komu hingað og þeim sem horfðu heima. Það er sárt því Real Madrid mun ekki vinna sextánda titilinn í ár en við förum aftur til Madrid með höfuðið hátt því þeir gáfu allt sitt,“ sagði Arbeloa. „Við fengum nokkur færi til að skora fleiri mörk, sumir leikmenn voru þreyttir, en við ætluðum að gera breytingar rétt fyrir markið og með því marki var þetta búið,“ sagði Arbeloa. Real Madrid á nú ekki lengur raunhæfa möguleika á að vinna titil á þessu tímabili. „Við verðum að halda áfram því þetta er Real Madrid. Deildin er mjög erfið en jafnvel þann dag sem hún klárast verðum við að halda áfram að berjast til síðustu umferðar,“ sagði Arbeloa.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Mest lesið Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Strákarnir sitja fastir Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Sjá meira