Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar 15. apríl 2026 16:15 Þróunarsamvinnu hefur lítið borið á góma síðustu misseri í opinberri umræðu og því hjó ég sérstaklega eftir því á dögunum þegar hún rataði aftur í fréttir. Tilefnið var þó ekkert gleðiefni. Gamalkunn umræða um samdrátt í framlögum helstu ríkja heims og það sem kallað er breyttar áherslur í alþjóðakerfinu. Það felur í reynd í sér að fjármunir eru færðir frá fátækasta fólkinu í heiminum yfir í varnar- og öryggismál, ekki síst hergagnaframleiðslu. Þessi þróun er ekki bundin við Ísland. Erlendir fjölmiðlar og alþjóðastofnanir hafa á undanförnum misserum bent á að þróunarsamvinna sé að færast neðar á forgangslista margra ríkja. Atlantshafsbandalagið (NATO) tilkynnti fyrir skemmstu að allar aðildarþjóðirnar hefðu náð því marki að verja 2% af vergum þjóðartekjum til varnarmála. Á sama tíma tilkynnti Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) að einungis þrjár þjóðir hefðu uppfyllt markmiðið um að verja 0,7% af vergum þjóðartekjum til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu. Fyrir nokkrum árum voru þær mun fleiri. Á fimmtíu árum hafa íslensk stjórnvöld sett sér það markmið að ná þessu viðmiði. Það hefur hins vegar aldrei tekist. Það er því freistandi að tala um þegjandi samkomulag um að gera það ekki. Frasinn um að hljóð og mynd fari ekki saman, sem heyrist ítrekað í þingsal, á sannarlega við um þennan málaflokk. „Málaflokkur“ er þó fátæklegt orð þegar líf milljóna er í húfi. Þróunar- og mannúðarmál snúast í grunninn um að bjarga mannslífum og stuðla að mannsæmandi lífi þeirra sem búa við örbirgð og þjáningu. Á síðustu áratugum hefur íslensk þróunarsamvinna verið byggð upp á sífellt meiri fagmennsku og reynslu, með samvinnu að leiðarljósi: að stuðningur sé veittur á forsendum samstarfsríkjanna sjálfra. Sem lítið framlagsríki fann Ísland sér sess í þessum flókna veruleika með því að vinna með sveitarstjórnarstiginu í gegnum ríkisvaldið. Sú aðferðafræði, svokölluð héraðsnálgun, fólst í því að styðja héraðsstjórnir í bláfátækum samstarfsríkjum við að bæta grunnþjónustu, meðal annars á sviði vatns- og salernismála, heilbrigðis, menntunar og jafnréttis. Breytt orðræða og kerfisbreyting Í fyrrnefndum fréttum síðustu daga vakti einnig athygli mína að orðræðan sjálf virðist vera að breytast. Hugtök á borð við „þróunarsamvinna“ og „framlagsríki“ víkja fyrir eldri og gildishlöðnum hugmyndum um „aðstoð“ og „gjafaríki“ – hugtökum sem setja samstarfsríki í stöðu þiggjenda og auðug ríki á stall. Samvinna verður ekki til á slíkum forsendum. Fyrir tíu árum varð sú breyting á umgjörðinni að tvíhliða þróunarsamvinna – samstarf við einstök þróunarríki – var flutt frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands yfir í utanríkisráðuneytið og stofnunin lögð niður. Þetta var meðal annars gert til að auka samræmi og tengingu við aðra þætti utanríkisstefnu. Sambærilegar breytingar hafa átt sér stað víðar í Evrópu. Á síðari árum hefur þó víða orðið vart við gagnstæða þróun, meðal annars í Noregi, Hollandi og Bretlandi, þar sem aukin áhersla er nú lögð á að endurbyggja sérhæfða faglega getu í ljósi þess að hún veiktist innan ráðuneytanna. Þetta merkir ekki að alfarið sé horfið til fyrra fyrirkomulags, heldur fremur að leitað sé leiða til að tryggja að þekking og reynsla glatist ekki í breyttu skipulagi. Sú þróun endurspeglar einfaldlega að í málaflokki sem byggir á langtímasamstarfi og djúpri þekkingu má fagleg geta aldrei teljast aukaatriði. Þetta rímar við ráðleggingar í síðustu jafningjarýni OECD á íslenskri þróunarsamvinnu, þar sem sérstaklega er bent á mikilvægi þess að tryggja stöðugleika í mannauði, verja sérfræðiþekkingu og byggja upp getu til að fylgja þróunarverkefnum eftir til lengri tíma. Þekking og reynsla má ekki glatast Ég held að reynsla margra sem starfað hafa á þessu sviði sé sú að þegar samfella rofnar og þekking dreifist tapist auðveldlega það sem áður þótti sjálfsagt: djúp þekking á aðstæðum í samstarfsríkjum og geta til að fylgja verkefnum eftir til lengri tíma. Þróunarsamvinna er í eðli sínu langtímaverkefni. Hún byggir á trausti, samhengi og þekkingu á aðstæðum í samstarfslöndum. Slík þekking verður ekki til á einni nóttu og hún glatast auðveldlega ef ekki er markvisst haldið utan um hana. Ef þekkingin og reynslan sem byggð hefur verið upp fær að veikjast er hætt við að við stöndum eftir með kerfi sem lítur út fyrir að vera öflugt á pappírunum en hefur takmarkaða burði til að skila þeim árangri sem stefnt var að. Þörfin fyrir vandaða þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð hefur aldrei verið meiri en nú, á tímum vopnaðra átaka víða um heim, loftslagsbreytinga sem bitna helst á þróunarríkjum ríkjum og vaxandi fátæktar í kjölfar samdráttar í alþjóðlegum framlögum. Við þurfum að standa vörð um þau gildi sem þróunarsamvinna byggir á – mannlega reisn, mannúð og ábyrgð. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar