Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. apríl 2026 10:49 Áhrifavaldurinn Clavicular þykir umdeildur vegna þeirra leiða sem hann fer til að líta sem best út. Getty Umdeildi áhrifavaldurinn Clavicular sem hefur öðlast frægð fyrir að „looksmaxx-a“ var fluttur með hraði á sjúkrahús vegna ætlaðrar ofskömmtunar eftir að það slökknaði skyndilega á beinu streymi hans. Clavicular hefur talað opinskátt um notkun sína á ólöglegum efnum til að líta betur.
Hinn tuttugu ára Clavicular, sem heitir réttu nafni Braden Peters, var að taka upp myndband í beinni í verslunarmiðstöð með tveimur vinum sínum þegar atvikið átti sér stað í gær. Dægurmálamálamiðillinn Peoplegreinir frá. Í myndbandinu má sjá Peters fara upp að ungri konu og ræða við hana en þá sést að hann er undir áhrifum einhverra sljóvgandi efna. Clavicular gekk eftir tískupallinum á tískuvikunni í New York í febrúar.Getty „Fjandinn hafi það, ég er að reyna mitt besta, en ég er fokking eyðilagður núna,“ segir Peters við konuna og endurtekur sama frasann með reglulegu millibili. Hópurinn sest næst á bar og spyr áhrifavaldurinn Androgenic þá Peters; „Hvenær tókstu síðasta bláa?“. Ekki liggur fyrir hvað er átt við þar, sennilega einhvers konar töflur, mögulega bláar oxýkontín-töflur. Skömmu seinna spyr Androgenic hvort Peters vilji „addy“ sem er slangur fyrir örvandi ADHD-lyfið Adderall. Í kjölfarið slokknaði á streyminu. Ekki liggur fyrir hvers konar lyfja Peters neytti fyrir atvikið en Androgenic tjáði sig um málið á X (Twitter): „Ég hafði ekki séð hann í svona ásigkomulagið áður og hann fór úr því að tala í að vera frekar fáskiptinn á nokkrum sekúndum. Á innan við mínútu áttuðum við okkur allir á aðstæðum, slökktum á streyminu og fórum með hann í hraði á spítala,“ skrifaði Androgenic í færslunni. Metamfetamín, testósterón og fleira til að „looksmaxx-a“ Clavicular hefur vakið mikla athygli fyrir hegðun sína og hugmyndafræði síðustu mánuði. Hann er sennilega sá sem hefur breitt hvað mest út hugmyndina um að „looksmaxx-a“ sem gengur út á að líta sem best út sama hvað og eftir öllum mögulegum leiðum, jafnvel með skaðlegum aðferðum. Sjálfur hefur Peters sagt að hann hafi neytt metamfetamíns til að léttast og byrjað að sprauta sig með testósteróni þegar hann var fjórtán ára gamall. Í lok mars var Clavicular handtekinn fyrir að hafa skipulagt slagsmál tveggja kvenna til að taka þau upp á myndband. Nýverið fór Peters í viðtal hjá Adam Hegarty í 60 Minutes Australia til að ræða þennan netkima ungra karlmanna sem hefur þótt umdeildur vegna öfgakenndra hugmynda. Hegarty spurði Peters hvers vegna hann hefði varið tíma með umdeildum fígúrum á borð við Andrew Tate og reiddist Peters þá. „Ég sé að þú vilt gera þetta pólítískt,“ sagði Peters og bætti við: „Því miður hef ég ekki haft tíma til að skoða með hverjum konan þín hélt framhjá þér mér.“ Vísaði Peters þar í eldra viðtal sem hann fór í hjá Piers Morgan þar sem hann reitti þáttastjórnandann breska til reiði með sambærilegu tali.
Samfélagsmiðlar Bandaríkin Tengdar fréttir „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Áhrifamáttur samfélagsmiðlastjarna sem ala á kvenhatri og öfgafullri karlmennsku nær til ungmenna hér á landi að sögn verkefnastjóra ofbeldis- og kynheilbrigðismála Barnaheilla. Dæmi séu um að ungir drengir komi öðruvísi fram við kvenkyns starfsfólk í skólum og frístund miðað við karlkyns. 19. mars 2026 20:19 Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem biðja um mynd með einum áhrifavaldinum. 17. mars 2026 15:09 Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira
„Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Áhrifamáttur samfélagsmiðlastjarna sem ala á kvenhatri og öfgafullri karlmennsku nær til ungmenna hér á landi að sögn verkefnastjóra ofbeldis- og kynheilbrigðismála Barnaheilla. Dæmi séu um að ungir drengir komi öðruvísi fram við kvenkyns starfsfólk í skólum og frístund miðað við karlkyns. 19. mars 2026 20:19
Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem biðja um mynd með einum áhrifavaldinum. 17. mars 2026 15:09