Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir skrifar 14. apríl 2026 09:16 Viska stéttarfélag hefur á skömmum tíma orðið stærsta stéttarfélag háskólamenntaðra á Íslandi og sannað sig sem öflugur vettvangur fyrir kjarabaráttu. Nú standa yfir kosningar til stjórnar Visku og á slíkum tímamótum skiptir máli að horfa fram á veginn. Hvernig félag viljum við byggja og hvaða rödd viljum við að háskólamenntað fólk hafi? Rödd sem byggir á fagmennsku og gögnum Á vinnumarkaði sem breytist hratt er ekki sjálfgefið að menntun og sérfræðiþekking fái það vægi sem hún á skilið. Þess vegna skiptir máli að hafa sterka hagsmunagæslu. En það sem ræður úrslitum er hvernig henni er beitt. Við þurfum rödd sem skilar árangri. Rödd sem byggir málflutning sinn á gögnum, fagmennsku og skýrri forgangsröðun. Rödd sem er nógu sterk til að þrýsta á um breytingar þegar þörf er og er nógu trúverðug til að ná árangri í samstarfi við stjórnvöld og atvinnulíf. Lausnamiðuð hagsmunagæsla er forsenda varanlegra umbóta. Sameinuð rödd til framtíðar Ég býð mig fram til áframhaldandi stjórnarsetu í Visku vegna þess að ég veit hvað þarf til að halda áfram að byggja upp stéttarfélag sem háskólamenntaðir á Íslandi eiga skilið. Frá stofnun hef ég tekið þátt í að byggja félagið upp og setið í stjórn þess frá fyrsta degi, auk þess að gegna hlutverki gjaldkera BHM. Ég þekki því innviði félagsins, samningaborðið og það hvernig raunverulegur árangur næst fyrir félagsmenn. Ég hef unnið að því að efla greiningargetu Visku og styrkja stöðu félagsins á almenna markaðnum. Þá hef ég komið að verkefnum sem skipta máli í daglegu lífi fólks, meðal annars í húsnæðismálum, með stofnun nýs óhagnaðardrifins húsnæðisfélags í sameiningu við Félag íslenskra náttúrufræðinga og tekið þátt í að efla tengsl við stúdentahreyfinguna með stofnun Visku stúdent aðildarkerfis. Á næstu árum mun reyna enn frekar á kjarasamningsstöðu háskólamenntaðra. Þá þurfum við ekki aðeins góða sýn heldur fólk sem getur hrint henni í framkvæmd. Ég bið um þinn stuðning til áframhaldandi stjórnarsetu í Visku stéttarfélagi svo við getum tryggt að Viska haldi áfram að vera sterk, áhrifarík og sameinuð rödd háskólamenntaðra til framtíðar. Félagsfólk getur kosið hér til kl. 12 fimmtudaginn 16. apríl. Ég hvet félagsmenn eindregið til að nýta kosningaréttinn. Höfundur er frambjóðandi til stjórnar Visku. Hér getur þú kynnt þér mitt framboð betur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Mest lesið „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson Skoðun Börn og kennarar geta ekki beðið lengur Róbert Ragnarsson Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Vinna með foreldrum barna í vanda Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir Skoðun Raki og mygla í skólum er lýðheilsumál Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vex Árborg hraðar en skipulagið ræður við? Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Vinna með foreldrum barna í vanda Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Börn og kennarar geta ekki beðið lengur Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson skrifar Skoðun Meira lýðræði fyrir Múlaþing Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Raki og mygla í skólum er lýðheilsumál Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Börnin á bakkanum Þórey María E. Kolbeins skrifar Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan skrifar Skoðun Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar Skoðun Sterk landsbyggð styrkir Ísland allt Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson skrifar
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar