Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2026 23:16 Rory McIlroy með dóttur sinni Poppy í Masters-vikunni. Getty/ Jared C. Tilton Rory McIlroy hélt skemmtilega ræðu eftir að hann vann Mastersmótið í golfi annað árið í röð en ein í áhorfendahópnum varð svolítið vandræðaleg eftir orð meistarans.
McIlroy tók nefnilega að sér hlutverk vandræðalega pabbans gagnvart dóttur sinni Poppy eftir sigur sinn á Masters-mótinu og úr varð krúttlegt augnablik þegar fimm ára dóttir Rory McIlroy setti höfuðið í hendurnar eftir stríðnisleg ummæli hans. Hin fimm ára gamla Poppy, eiginkonan Erica Stoll og foreldrarnir Gerry og Rosie horfðu stolt á þegar McIlroy flutti sigurræðu sína á sunnudag. Poppy faldi andlitið á krúttlegan hátt í vandræðalegheitum eftir glettnisleg ummæli McIlroy. Elskar ísinn „Þetta er klárlega orðin uppáhaldsvika Poppy á árinu. Ég veit ekki hvort það er vegna Par-3 mótsins eða ótakmarkaða íssins í þjónustubyggingu keppenda,“ sagði Rory sposkur. Poppy var fyrsti fjölskyldumeðlimurinn til að faðma McIlroy eftir að hann tryggði sér sigur á Masters-mótinu annað árið í röð. Með sjötta risatitilinn í höfn gaf McIlroy eiginkonu sinni Ericu stóran koss og vottaði foreldrum sínum tilfinningaþrungna virðingu. “This has definitely turned into Poppy’s favorite week of the year. I don’t know if it’s because of the Par-3 Tournament or it’s all-you-can-eat ice cream in the Player Services Building…”Every McIlroy enjoys the Masters. 😂 pic.twitter.com/vPzOZRC4DY— Golf Digest (@GolfDigest) April 12, 2026 Hann stillti sér svo upp fyrir fjölskyldumyndatökur í sínum öðrum græna jakka, aðeins tólf mánuðum eftir að hann fékk þann fyrsta. Sigurinn kom eftir að hann náði sér á strik eftir hrunið á laugardaginn og vann efsta mann heimslistans, Scottie Scheffler, með einu höggi . Sótti um skilnað Þetta var mynd sem hefði ekki verið möguleg ef McIlroy og Ericu hefði ekki tekist að bjarga sambandi sínu. Þau kynntust árið 2012, byrjuðu saman árið 2014 og giftu sig árið 2017 áður en þau eignuðust Poppy – eina barnið þeirra – árið 2020. En McIlroy sótti um skilnað árið 2024 og sagði að hjónabandið væri búið. Aðeins vikum síðar var skilnaðarbeiðninni hins vegar vísað frá. McIlroy sagði á þeim tíma: „Undanfarnar vikur höfum við Erica gert okkur grein fyrir því að besta framtíð okkar væri saman sem fjölskylda. Sem betur fer höfum við leyst úr ágreiningi okkar og hlökkum til nýs upphafs,“ sagði McIlroy. Parið sættist í tæka tíð fyrir McIlroy til að njóta tveggja af bestu stundum ferils síns. Hann, Erica og Poppy fögnuðu á átjándu flötinni á Augusta í fyrra, þegar hann batt enda á ellefu ára risatitlaþurrð sína og fullkomnaði feril-risaslemmu sína. Þau voru aftur hamingjusöm fjölskylda um helgina þegar McIlroy vann annað árið í röð. View this post on Instagram A post shared by Sports on Prime (@sportsonprime)
Golf Masters-mótið Mest lesið Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Elías Rafn vann Íslendingaslaginn í Danmörku Fótbolti Fleiri fréttir Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Sjá meira