Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Kjartan Kjartansson skrifar 13. apríl 2026 15:47 Bruno Lafont, fyrrverandi forstjóri franska sementsfyrirtækisins Lafarge, hlaut sex ára fangelsisdóm fyrir verndargreiðslur sem fyrirtækið greiddi Ríki íslams og fleiri öfgahópum í Sýrlandi á síðasta áratug. Vísir/EPA Franskur dómstóll dæmdi sementsframleiðandann Lafarge til þess að greiða sekt og stjórnendur þess í fangelsi fyrir að fjármagna hryðjuverkasamtök í Sýrlandi. Fyrirtækið greiddi samtökunum svokallað verndargjald til þess að halda starfsemi sinni í landinu stríðshrjáða gangandi.
Lafarge er talið hafa greitt sýrlenskum hryðjuverkahópum, þar á meðal Ríki íslams, 6,5 milljónir dollara til þess að kaupa sér frið frá þeim frá 2013 til 2014. Fyrirtækið rak verksmiðju í norðanverðu Sýrlandi sem það keypti rétt áður en borgarastríðið í Sýrlandi hófst árið 2011. Dómarinn í málinu sagði að greiðslurnar hefðu gert samtökunum kleift að ná völdum á náttúruauðlindum Sýrlands sem aftur gerði þeim mögulegt að fjármagna hryðjuverkárásir í Miðausturlöndum og Evrópu, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. „Það er dómnum ljóst að eini tilgangur þess að fjármagna hryðjuverksamtök var að halda sýrlensku verksmiðjunni gangandi af fjárhagslegum ástæðum. Greiðslur til hryðjuverkasamtaka gerði Lafarge kleift að halda áfram starfsemi,“ sagði dómarinn. Fyrirtækið var dæmt til þess að greiða eina milljóna dollara í sekt, jafnvirði um 123 milljóna íslenskra króna. Sex fyrrverandi starfsmenn Lafarge voru dæmdir fyrir þeirra þátt í greiðslunum, þar á meðal Bruno Lafont, fyrrverandi forstjóri, sem hlaut sex ára dóm. Rannsakað fyrir aðild að glæpum gegn mannkyninu Fyrirtækið sætir enn rannsókn fyrir mögulega glæpi gegn mannkyninu vegna verndargreiðslnanna. Þá gerði það sátt um að greiða hundruð milljóna dollara í sekt í Bandaríkjunum vegna greiðslanna árið 2022. Lafarge er nú runnið inn í svissneska fyrirtækið Holcim og er hluti af einum stærsta sementsframleiðanda heims. Það kom við sögu í umdeildri umfjöllun Heimildarinnar um fyrirhugaða kolefnisförgunarstöð Carbfix í Hafnarfirði í fyrra. Fullyrti blaðið að Carbfix hefði gert viljayfirlýsingu við Lafarge í tengslum við förgunarstöðina og að fyrirtækið væri það eina í heiminum sem hefði verið dæmt fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hvorugt var þó rétt.
Frakkland Erlend sakamál Sýrland Mest lesið Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira