Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. apríl 2026 08:58 Reynir og Sólveig giftu sig föstudaginn 10. apríl. Reynir Bergmann Reynisson, athafnamaður og snappari, og Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir Saithong, naglafræðingur og hárgreiðslukona, giftu sig á föstudaginn í rauðum Liverpool-treyjum.
Reynir greindi frá tíðindunum samdægurs með Instagram-færslu og skrifaði við hana: „Giftur maður 🤵👰♂️ 10.04.2026“ „Þar sem við sögðum engum frá þessu[,] no worries þið fáið boð í rosalegt garðpartý í sumar þar sem öllu verður til tjaldað,“ skrifaði hann jafnframt í færslunni. Reynir og Sólveig með dætrum sínum þremur. Reynir og Sólveig hafa verið saman síðan 2010, trúlofuðu sig í byrjun árs 2019 og eiga þrjár dætur saman. Þau hafa rekið saman fyrirtækin Vefjuna, Park and Fly og nú Premier Trips. Hjónin eru miklir aðdáendur Liverpool og voru við athöfnina, sem virðist hafa farið fram hjá sýslumanni, bæði klædd í rauðar síðerma treyjur liðsins frá tímabilinu í ár. Dætur þeirra þrjár voru sömuleiðis klæddar í treyjur liðsins við athöfnina. Þær voru allar í stutterma varatreyjum liðsins frá 2022/23-tímabilinu, sem er hvít með bláu og fjólubláu munstri, og í hvítum buxum með. Hjartastopp, útskrift og gifting Það er skammt stórra högga á milli hjá Reyni því sex dögum fyrir brúðkaupið útskrifaðist hann af námskeiði hjá auglýsingastofunni Sahara sem sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu. Síðustu mánuðir hafa þó ekki verið áfallalausir. Í ágúst á síðasta ári lenti Reynir í hjartastoppi eftir mikla steranotkun. Margar endurlífgunartilraunir þurfti til að vekja Reyni aftur til lífsins og var honum síðan haldið sofandi í öndunarvél í fimm daga eftir áfallið. Við tóku erfiðar vikur á spítalanum þar sem Reynir glímdi við miklar ranghugmyndir og reyndi tvívegis að flýja af spítalanum. Hann komst þó til sjálfs síns en var marga mánuði að jafna sig á líkama og sál eftir þetta mikla áfall. Hann hefur gegnum árin verið opinskár á samfélagsmiðlum með glímu sína við fíkn, ræddi kókaínneyslu sína í viðtali við Sölva Tryggvason árið 2024 og steranotkunina á Vísi.
Brúðkaup Samfélagsmiðlar Liverpool FC Ástin og lífið Tengdar fréttir Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Athafnamaðurinn Reynir Bergmann Reynisson segir steranotkun ástæðuna fyrir því að hann fékk hjartastopp í lok síðasta mánaðar. Til að geta lyft þyngri lóðum hafi hann notað sex ólíkar tegundir stera og skjaldkirtilshormónið T3. 5. september 2025 16:52 „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Reynir Bergmann athafnamaður segist hafa fundið innri frið á síðustu árum eftir að hafa í áraraðir glímt við fíkn og fallið aftur og aftur. Reynir er gestur í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar og segir þar kókaín hafa ítrekað tekið sig til helvítis og rústað lífi sínu. Hann sé þakklátur í dag að hafa fundið frelsi. 14. júlí 2025 13:02 Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira
Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Athafnamaðurinn Reynir Bergmann Reynisson segir steranotkun ástæðuna fyrir því að hann fékk hjartastopp í lok síðasta mánaðar. Til að geta lyft þyngri lóðum hafi hann notað sex ólíkar tegundir stera og skjaldkirtilshormónið T3. 5. september 2025 16:52
„Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Reynir Bergmann athafnamaður segist hafa fundið innri frið á síðustu árum eftir að hafa í áraraðir glímt við fíkn og fallið aftur og aftur. Reynir er gestur í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar og segir þar kókaín hafa ítrekað tekið sig til helvítis og rústað lífi sínu. Hann sé þakklátur í dag að hafa fundið frelsi. 14. júlí 2025 13:02