Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 12. apríl 2026 12:41 Steingrímur Dúi Másson, kvikmyndagerðarmaður og formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. vísir/lýður valberg Stór hópur fólks úr kvikmyndageiranum hefur ráðið sig til starfa í ferðamannabransanum vegna þess sem lýst er sem algjöru frosti í greininni. Formaður Félags kvikmyndagerðarmanna kallar eftir auknu gagnsæi frá stjórnvöldum og segir nauðsynlegt að hraða endurskoðun á endurgreiðslukerfi vegna kvikmyndagerðar. „
Því miður þá verð ég að segja að það er frost í greininni og alls ekki gott ástand,“ segir Steingrímur Dúi Másson, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Óvissan algjör Fjallað hefur verið um frost í kvikmyndageiranum hér á landi, meðal annars vegna þess að Kvikmyndasjóður hefur dregist saman á undanförnum árum. Mikill samdráttur er bæði í íslenskum og stórum erlendum verkefnum sem rekja má til margra þátta. Einn þeirra er sú staðreynd að nú stendur yfir endurskoðun á endurgreiðslukerfinu. „Sem verður örugglega hið besta mál þegar henni er lokið en það býr til ákveðna óvissu sem er alls ekki að hjálpa í þeim geira.“ Enda stóla stóru erlendu framleiðslufyrirtækin á endurgreiðsluna sem hefur verið algjör forsenda fyrir tækifærum hér á landi að sögn Dúa. Á meðan endurskoðun stendur yfir sé óvissa í greininni algjör. Hann kallar eftir gagnsæi. „Við viljum vita hvað er verið að endurskoða, hvað er verið að vinna. Og svo viljum við líka bara að þessari óvissu verði eytt, að ferlinu verði hraðað. Við óskum eftir því að stjórnvöld verði með ákveðið gagnsæi í sambandi við endurgreiðslurnar og að fagfélögin og þessir hagsmunaaðilar fái að koma meira að borðinu í þeirri vinnu og vonumst til þess að því ferli verði flýtt þannig að endurskoðun á endurgreiðslunni verði lokið sem fyrst.“
Kvikmyndagerð á Íslandi Menning Bíó og sjónvarp Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Gul viðvörun vegna skriðuhættu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira