Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Freyja Þórisdóttir skrifar 12. apríl 2026 07:36 Í athugasemd veðurfræðings segir: Talsverð eða mikil úrkoma á Austfjörðum til fyrramáls. Rigning á láglendi en snjókoma til fjalla. Vísir/Vilhelm Nú færast skil yfir norðurhluta landsins sem valda snjókomu, slyddu eða rigningu, einkum norðan- og austanlands. Í dag má svo búast við að vind lægi smátt og smátt í flestum landshlutum en áfram verður hvasst norðvestanlands með snjókomu fram á kvöld og nótt. Mildasta veðrið verður að finna sunnantil á landinu, þurrt að mestu en spáir fyrir einhverjum skúrum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Þar spáir einnig norðaustan og austan 5-13 m/s um og eftir hádegi, en 13-20 m/s norðvestantil fram á kvöld. Áfram helst hiti yfir frostmarki og fer hann mest upp í níu stig. Svo segir að á mánudag og þriðjudag verði fremur hægar breytilegar áttir í flestum landshlutum og dálitlar skúrir, en yfirleitt úrkomuminna norðan jökla. Spákort fyrir klukkan fjögur í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Suðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s, en strekkingur norðvestantil fram á kvöld. Víða dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að mestu norðan jökla síðdegis. Hiti 2 til 8 stig, en um og undir frostmarki í innsveitum norðan- og austanlands.Á þriðjudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 3-10 og þurrt að mestu, en rigning eða slydda sunnan- og suðaustantil. Bætir í vind og úrkomu þar með kvöldinu. Hiti breytist lítið.Á miðvikudag: Norðaustan- og austan 8-15 með rigningu eða slyddu, einkum suðaustantil, en lengst af úrkomulítið norðvestanlands. Lægir með kvöldinu. Hiti 2 til 10 stig.Á fimmtudag: Sunnan gola eða stinningsgola og rigning með köflum, en þurrt að mestu norðvestanlands. Hiti 1 til 8 stig.Á föstudag: Útlit fyrir hæga suðlæga átt og smáskúrir sunnan- og vestanlands, en annars bjart með köflum. Hiti 2 til 7 stig.
Veður Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Fleiri fréttir Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Sjá meira