Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Freyja Þórisdóttir skrifar 11. apríl 2026 07:25 Í fyrramálið tekur að lægja og er spáð minni úrkomu um mestallt land síðdegis á morgun. Vísir/Vilhelm Hiti mun ná allt að níu stigum næstu daga en í dag nálgast víðáttumikil og djúp lægð landið úr suðaustri og því má búast við vaxandi norðaustanátt fram eftir degi. Mjög hvasst verður í Öræfum um tíma í kvöld og geta hviður farið upp í allt að 35 m/s.
Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í kvöld verði allhvasst við Öræfi en hægari vindur norðaustanlands. Þar er einnig biðlað til þeirra ökumanna sem verða á ferðinni í kvöld um að fylgjast vel með staðarspám en á svæðinu geta skapast varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsbíla og vörubíla. Búast má við dálitlu éli og slyddu norðan- og austantil, en snjókomu, slyddu eða rigningu síðdegis. Á morgun tekur svo að lægja um landið sunnan- og austanvert með rigningu eða slyddu. Hiti frá frostmarki og allt að níu stigum. Útlit er svo fyrir hlýrra og rólegra vorveður í flestum landshlutum fram í miðja næstu viku. Í tilkynningu segir að vegna snjókomu verði blint á fjallvegum austantil á landinu eftir klukkan fjögur í dag t.d. Fagradal og Fjarðarheiði, og svo á einnig á flestum heiðum um norðanvert landið í nótt. Hægari vindur og dregur úr ofankomu í fyrramálið, en áfram hríð á fjallvegum á Vestfjörðum á morgun, t.d. Klettsháls og Steingrímsfjarðarheiði, fram á aðra nótt. Hægt er að fylgjast með færð á vegum á vef Vegagerðarinnar. Spákort fyrir klukkan 18:00.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Norðan og norðaustan 13-20 m/s með snjókomu eða slyddu og rigningu, en lægir smám saman sunnan- og austanlands. Dregur úr úrkomu norðanlands síðdegis. Hiti 1 til 7 stig.Á mánudag: Norðaustan 10-18 og snjókoma eða slydda norðvestantil, annars hægari og víða rigning, skúrir eða slydda með ströndinni, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti breytist lítið.Á þriðjudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 3-10 og þurrt að mestu, en rigning eða slydda suðaustan og austantil. Bætir í vind og úrkomu sunnan- og austantil með kvöldinu. Hiti um og undir frostmarki fyrir norðan, en 2 til 8 stig syðra.Á miðvikudag: Strekkings eða allhvöss norðaustan- og austanátt með rigningu eða slyddu, einkum austanlands, en lengst af úrkomulítið norðvestanlands. Heldur hlýnandi.Á fimmtudag: Útlit fyrir ákveðna suðaustlæga átt og rigningu, einkum suðvestantil, en bjart með köflum norðanlands. Lægir með deginum og dregur úr úrkomu. Kólnandi. Fréttin var uppfærð klukkan 9:36 vegna tilkynningar varðandi erfið akstursskilyrði.
Veður Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira