„Allir að tikka inn og vörnin var bara framúrskarandi“ Siggeir Ævarsson skrifar 10. apríl 2026 21:34 Ólafur og Kristófer Breki endurskapa frægt atriði úr fyrstu Predator myndinni. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, var kampakátur í leikslok í Grindavík þar sem heimamenn lögðu Njarðvík 97-85 og eru komnir í 2-1 í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum.
Eftir mjög jafnan leik framan af keyrðu Grindvíkingar upp ákafann í vörninni í 4. leikhluta og tóku leikinn einfaldlega yfir og litu aldrei til baka. „Vörnin fór að smella og þeir áttu erfitt með að skora. Við vorum að finna alla leikmenn einhvern veginn á hinum enda vallarins. Raggi Braga kom hérna inn á og var hreint út sagt stórkostlegur hérna í 4. leikhluta.“ „Allir að tikka inn og vörnin var bara framúrskarandi í fjórða og í lok þriðja.“ Ragnar smellti í tvo þrista í röð og breytti stöðunni úr 71-70 í 77-70 eins og hendi væri veifað. Svona innkoma kveikir í liðum. „Klárlega og sérstaklega þegar það kemur einhver svona klár af bekknum. Ekki búinn að spila fyrstu þrjá og kemur svo inn á og dúndrar niður tveimur þristum í röð. Þriðji var reyndar „way off“ en það er annað mál,“ - sagði Ólafur og glotti, „stór plús í kladdann á Ragga.“ Á þessum tímapunkti var varla hægt að halda áfram með viðtalið þar sem lætin í troðfullri stúkunni voru ærandi þar sem Grindvíkingar sungu allir saman „Og þeir skora“. „Þetta gæti ekki verið betra! Það er jarðskjálftahrina í stúkunni. Spurning hvort við megum vera hérna, ef við erum á eigin ábyrgð.“
Bónus-deild karla UMF Grindavík Körfubolti Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira