Góðan daginn býður góðan dag Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. apríl 2026 20:32 Ingimar Þór Friðriksson, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir og Torfi Markússon, frambjóðendur Góðs dagsins. vísir/anton brink Ellefu flokkar skiluðu nauðsynlegum gögnum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar áður en framboðsfrestur rann út klukkan tólf. Óvænt framboð hreyfingarinnar Góðan daginn barst á elleftu stundu en þau segjast vilja bæta rekstur borgarinnar með nýjum áherslum.
Framboðsfesturinn fyrir sveitastjórnarkosningar rann út í hádeginu og flykktust forsvarsmenn flokka í Reykjavík í ráðhúsið til að skila þar til gerðum gögnum til yfirkjörstjórnar til að staðfesta framboðið. Þar á meðal var óvænt framboð í nafni nýs flokks sem ber heitið Góðan daginn. Alls skiluðu ellefu flokkar þeim gögnum sem þarf til að staðfesta framboð í Reykjavík. Tíu flokkar sem höfðu áður tilkynnt framboð sitt höfðu lokið skráningu upp úr klukkan ellefu. Rétt áður en fresturinn rann út barst óvænt framboð sem var opinberað klukkan níu í gærkvöldi með nýrri vefsíðu. Hér fyrir neðan má sjá þegar efstu þrjú sæti Góðs dagsins buðu góðan daginn er þau héldu á fund yfirkjörstjórnar. Þegar inn til yfirkjörstjórnar var komið kom í ljós að framboðið vantaði meðmælendur til að uppfylla skilyrði framboðs og því sólarhringsfrestur veittur. Alls vantaði nítján meðmæli en forsvarsmenn flokksins sögðu aðeins formsatriði að ná því. Torfi Markússon, fyrrverandi eigandi hjá Intillecta, stofnaði hreyfinguna fyrir skömmu. „Til að geta beitt mér í þessu varð ég að láta þetta eiga sig eða bara hætta hjá Intillecta. Ég var þarna einn af fimm eigendum og ég þurfti að selja hlutinn. Það er búið að ganga frá því og ég hef látið formlega af störfum og slitið öllum tengslum við það annars góða fyrirtæki. Þetta er mitt framlag. Ég er rosalega ánægður með þetta. Þetta er það sem okkur hjónunum langaði að gera. Hreinlega hætta að svekkjast yfir hlutunum. Við teljum að það sé þörf á svona framboði.“ Þau vilja til að mynda endurskoða borgarlínu og Sundabraut með sérstaka áherslu á skilvirkan rekstur. „Við erum ekki eins og stjórnmálaflokkarnir sem eru með fortíð sem þarf að svara fyrir. Við þurfum fyrst og fremst bara að standa við það að við búum yfir einhverri þekkingu til að koma inn í rekstur,“ sagði Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, leiðtoga- og teymisþjálfi sem vermir annað sæti lista hreyfingarinnar. „Þetta er óháð framboð og við lítum svo á að við verðum fulltrúar eða starfsmenn borgarbúa en ekki starfsmenn einhverra flokka sem þurfa að gæta sinna hagsmuna,“ sagði Ingimar Þór Friðriksson, oddviti Góðs dagsins. En hvaðan kemur nafnið Góðan daginn? „Við vorum nokkur sem vorum í undirbúningshóp að reyna finna eitthvað glaðlegt og grípandi nafn. Maður býður góðan daginn langt fram eftir degi. Við settum vekjaraklukku með í lógóið líka. Við settum vekjarklukku með í lógóið bara svo kjósendur vakni. Það er hægt að gera betur og breyta.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Góðan daginn Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira