Goðsögn fallin frá Valur Páll Eiríksson skrifar 7. apríl 2026 19:16 Mircea Lucescu er látinn. vísir/getty Rúmenski knattspyrnuþjálfarinn Mircea Lucescu er fallinn frá eftir baráttu við skammvinn veikindi. Hann lést á spítala í Búkarest í dag, áttræður að aldri.
Lucescu var þjálfari rúmenska landsliðsins og undirbjó síðasta leik ferilsins þegar hann var fluttur á spítala þann 29. Mars síðastliðinn. Hann var þá með rúmenska liðið á fundi í aðdraganda leiks Rúmeníu við Slóvakíu sem fram fór á þriðjudag í síðustu viku. Fyrir leikinn lá fyrir að leikurinn átti að vera hans síðasti á áratuga löngum og farsælum þjálfaraferli Rúmenans. Hann hefur verið á spítala síðan og gat því ekki stýrt Rúmeníu í leiknum. Hann sagði upp sem þjálfari landsliðsins af sjúkrarúmi sínu fyrir þremur dögum síðan. Spítali sem hann dvaldi á í Búkarest sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem fram kom að Lucescu væri látinn eftir heilablóðfall. Lucescu er goðsögn í Rúmeníu og víðar eftir farsælan feril, bæði sem leikmaður og sem þjálfari. Hann lék fyrir Dinamo Búkarest lungann af leikmannaferlinum og milli 1963 og 1977 vann hann sex meistaratitla með liðinu. Hann spilaði einn leik fyrir liðið árið 1990, þá orðinn 45 ára gamall og þjálfari liðsins, er það varð aftur rúmenskur meistari. Sá titill var eini rúmenski meistaratitillinn sem hann vann sem þjálfari Dinamo en hann stýrði grönnunum í Rapid Búkarest til rúmensks meistaratitils árið 1999. Lucescu flakkaði um og stýrði til að mynda Brescia til B-deildartitils á Ítalíu og var um tíma þjálfari Inter Milan, rétt fyrir aldamót. Á 21. öldinni fór hann á flakk þar sem hann gerði Galatasaray að tyrkneskum meisturum árið 2002 og tímabilið eftir stýrði hann grönnum þeirra í Besiktas til tyrknesks meistaratitils. Hann fór í kjölfarið til Úkraínu og er hvað þekktastur fyrir þrettán ára feril sinn sem þjálfari Shakhtar Donetsk á gullaldarskeiði liðsins milli 2004 og 2016. Shakhtar varð úkraínskur meistari átta sinnum, bikarmeistari sex sinnum auk þess að vinna UEFA-bikarinn árið 2009 undir hans stjórn. Lucescu stýrði Dinamo Kiev til úkraínsks meistaratitils árið 2021 en hafði í millitíðinni þjálfað Zenit í Pétursborg og tyrkneska landsliðið eftir tíma sinn hjá Shakhtar. Hann kom hingað til lands er Tyrkland og Ísland áttust við haustið 2017. Síðasta starf hans á ferlinum var sem þjálfari rúmenska landsliðsins sem stefndi á HM í Bandaríkjunum í sumar en varð ekki erindi sem erfiði. Áður hafði Lucescu komið Rúmeníu á fyrsta Evrópumótið er hann var þjálfari landsliðsins sem komst á EM 1984.
Andlát Rúmenía Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Sjá meira