Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. apríl 2026 06:33 Árásir og hótanir um árásir hafa sett daglegt líf í Íran gjörsamlega úr skorðum. Getty/Morteza Nikoubazl Ísraelsher hefur varað Írani við því að nota lestarkerfi landsins í dag og fram til klukkan 21 í kvöld. Viðvörunin var gefin út á samfélagsmiðlinum X, þar sem sagði að íbúar væru vinsamlegast beðnir um að ferðast ekki með lestum í dag eða vera nálægt lestarleiðum, þar sem það myndi setja líf þeirra í hættu.
Ekki er hægt að túlka viðvörunina öðruvísi en að Ísraelsmenn hyggist gera árásir á samgöngur í Íran í dag. Ísraelsher greindi einnig frá því í morgun að hann hefði lokið árásarhrinu sem beindist gegn innviðum stjórnarinnar í Tehran og víðar. Íranir hefðu svarað með eldflaugaárás á Ísrael en varnarkerfi landsins gripið inn í. Brúnni sem tengir Sádi Arabíu og eyríkið Bahrain var lokað í morgun vegna mögulegra skemmdarverka af hálfu Írana, sem gerðu árásir á austurhluta Sádi Arabíu í gær. Brúin er eina tengingin milli Bahrain og Arabíuskaga. Þá greindi varnarmálaráðuneyti Sádi Arabíu frá því í morgun að átján drónar hefðu verið skotnir niður á síðustu klukkustundum og einhver fjöldi eldflauga. Frestur Trump að renna út Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem sjálfur hefur hótað árásum á samgönguinnviði í Íran, sagðist í gær ekki hafa áhyggjur af því að fremja mögulega stríðsglæpi. Á blaðamannafundi í gær sagði hann mögulegt að gera út um Íran á einni nóttu og að það gæti gerst núna, aðfaranótt miðvikudags. Íranir hafa hafnað þeim vopnahléstillögum sem lagar hafa verið fram og meðal annars krafist þess að þeim verði veitt trygging fyrir því að ekki verði gerðar frekari árásir á landið. Trump sagði hins vegar í gær að ef ekki yrði komist að samkomulagi í dag yrðu allar brýr í landinu sprengdar í loft upp í nótt og allir orkuinnviðir eyðilagðir. Þá segir forsetinn Írani hafa frest til miðnættis til að tilkynna um opnun Hormuz-sunds.
Íran Bandaríkin Ísrael Sádi-Arabía Barein Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira