Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Freyja Þórisdóttir skrifar 2. apríl 2026 07:38 Í tilkynningu frá Vegagerðinni er fólk beðið um að sýna aðgát og fylgjast með lokun vega. mynd/stefán Gular viðvaranir hafa verið gefnar út og tekið gildi víða um land enn á ný. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að búast megi við hvassri suðaustanátt og ofankomu í flestum landshlutum í dag.
Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Þá er spáð kólnandi veðri og suðaustan hvassviðri og snjókomu norðaustan- og austantil fram undir miðnætti. Gular viðvaranir voru gefnar út í gær og tóku þær fyrstu gildi seint í gærkvöldi en seinustu viðvaranir renna út í kvöld. Viðvaranir voru gefnar út fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra, miðhálendi og Austurland að glettingi. Í spá segir að búast megi við talsverðri snjókomu eða éljagangi með skafrenningi, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar. Á vef Vegagerðarinnar er vakin athygli á því að mjög hvasst verði og blint í skafrenningi á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku núna með morgninum og til um klukkan ellefu. Einnig eru vegfarendur beðnir að athuga að vart hefur orðið við brotholur í vegum víða á Reykjanesi og á Hellisheiði og þarf því að aka með sérstakri gát. Vegir eru víða ófærir og er fólk hvatt til að fylgjast með tilkynningum vegna veglokana á vef Vegagerðarinnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag (föstudagurinn langi): Hæg breytileg átt, en suðaustan 5-13 m/s við vesturströndina. Stöku él sunnantil, annars þurrt að mestu, en gengur í austan 8-13 á Norðaustur- og Austurlandi eftir hádegi með snjókomu. Hiti um eða undir frostmarki að deginum.Á laugardag: Austan og norðaustan 8-13 norðan- og austantil og snjókoma eða slydda, en hægari og stöku él á Suður- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið.Á sunnudag (páskadagur): Norðaustan og norðan 10-18 og snjókoma með köflum, en hægari og stöku él sunnantil. Hiti um eða undir frostmarki.Á mánudag (annar í páskum): Vaxandi austanátt og úrkomulítið, en hlýnar síðdegis með snjókomu eða slyddu og síðar rigningu.Á þriðjudag: Suðaustan- og sunnanátt og rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 3 til 9 stig.Á miðvikudag: Suðlæg átt og skúrir sunnan- og vestantil, annars þurrt að mestu. Heldur kólnandi.
Veður Færð á vegum Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Sjá meira