Mesta kvikusöfnun til þessa Agnar Már Másson skrifar 31. mars 2026 20:09 Land heldur áfram að rísa undir Svartsengi og eldgos er enn líklegasta sviðsmyndin. Vísir/RAX Aldrei hefur eins mikil kvika safnast saman undir Svartsengi síðan eldgosahrina hófst í nágrenni við Grindavík á Reykjanesskaga. En kvikustreymið hefur sömuleiðis aldrei verið hægara. Líklegasta sviðsmyndin er enn kvikuhlaup eða eldgos, sem yrði að líkindum stærra en fyrri gos.
Í tilkynningu frá Veðurstofunni er sagt frá því að rúmlega 24 milljónir rúmmetra af kviku hafi nú safnast saman undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Þannig hefur magn kviku í kvikuhólfinu undir Svartsengi aldrei verið hærra eftir að eldgosahrinan byrjaði á Sundhnúksgígaröðinni í nóvember 2023. Niðurstaða líkanreikninga sem meðal annars byggja á mælingum á landrisi sýna heildarrúmmál fyrir hvert kvikusöfnunartímabil við Svartsengi frá desember 2023. Appelsínugulu súlurnar sýna heildarrúmmál sem safnaðist milli kvikuhlaupa eða eldgosa. Rauða súlan táknar rúmmálið sem safnast hefur frá eldgosinu í júlí til dagsins í dag.Veðurstofa Íslands Veðurstofan tekur fram að kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni séu áfram líklegasta sviðsmyndin en þar sem magn kviku undir Svartsengi er nú meira en áður sé mögulegt að næsta eldgos geti orðið umfangsmeira en fyrri gos, nái kvikan að hluta til eða öllu leyti til yfirborðs. Því hefur verið haldið fram, meðal annars af eldfjallafræðingnum Þorvaldi Þórðarsyni, að líklegast sé eldgosahrinunni að ljúka enda sé kvika farin að safnast verulega hægt undir Svartsengi. Veðurstofan vill aftur á móti meina að hæg kvikusöfnun sé ekki skýr vísbending um að ekki komi til eldgoss. Nærtækasta dæmið um slíkt sé í eldgosahrinunni í Kröflu á árunum 1975-1984, þar sem tólf kvikuhlaup urðu og þar af níu sem enduðu í gosi. Þar hafði töluvert dregið úr innstreymi kviku fyrir síðasta, og jafnframt stærsta, gosið. Þó svo að eðlismunur sé á Kröflu og eldstöðvunum á Reykjanesskaga gefur samanburðurinn til kynna að kvikusöfnunin undir Svartsengi gæti haldið áfram í nokkur ár og möguleiki á nýju eldgosi sé áfram til staðar, skrifar Veðurstofan. Stofnunin vill meina að engin gögn bendi til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Eldstöðin Reykjanes-Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi 2, sem merkir „töluvert aukna virkni“. Veðurstofan segir að líkanreikningar sýni að hraði kvikusöfnunar undir Svartsengi hafi aldrei verið hægari. Það að kvikusöfnun hafi aldrei verið hægari og magn kviku undir Svartsengi hafi aldrei verið meira á milli eldgosa auki óvissuna um framvinduna á svæðinu. Ekki sé hægt að segja til um hvenær kvikuhlaup eða eldgos verði og tímaramminn hlaupi á mánuðum. Hættumat er óbreytt og gildir til 31. júní nema breytingar verði á virkninni. Hættumat er óbreytt og gildir til 31. júni.Veðurstofa Íslands
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira