Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Lovísa Arnardóttir skrifar 31. mars 2026 07:20 Það snjóar í dag og eflaust margir krakkar í fríi. Þá er hægt að fara út á sleða. Vísir/Anton Brink Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar snýst í vestan átta til fimmtán metra á sekúndu með éljum, en fimmtán til 23 metra á sekúndu um tíma austanlands með skafrenningi, einkum á fjallvegum. Hiti verður í kringum frostmark.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægð með snjókomu fari allhratt yfir landið til norðausturs snemma í dag, en fyrir hádegi verði lægðin þegar komin norðaustur af landinu og snúist þá í vestlæga átt. Svo gengur í vestlæga átt austanlands eftir hádegi og búast má við skafrenningi og lélegu skyggni á fjallvegum þar. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Austurlandi og Austfjörðum frá klukkan tíu og til klukkan 16. Í hugleiðingum segir að gott væri að kanna ástand á fjallvegum þar áður en lagt er af stað. Svo dregur úr vindi í kvöld og nótt. Hiti yfirleitt nálægt frostmarki. Hægt er að kanna veður á vef Veðurstofu og færð á vef Vegagerðar. Þungfært og hálka Á vef Vegagerðar kemur fram að Hellisheiði sé lokuð vegna umferðaróhapps og að víða sé þungfært, hálka og krapi. Lokað er um Dalsmynni og ófært um Öxi og Breiðdalsheiði. Þykknar upp seinni part á morgun Í hugleiðingum kemur fram að á morgun megi búast við breytilegri átt og þremur til átta metrum á sekúndu með stöku éljum eða skúrum, en vestan 10-15 austast á landinu framan af degi. Hiti verður á bilinu eitt til sex stig. Um hádegi á að stytta upp Vestanlands en snýst í vaxandi suðaustanátt og þykknar upp þar seinnipartinn. Suðaustan 10-18 m/s og dálítil rigning eða slydda sunnan- og vestantil annað kvöld, en þurrt með hægum vindum á austanverðu landinu. Suðaustan hvassviðri eða stormur með rigningu eða slyddu á fimmtudag, Skírdag, en lægir með stöku skúrum eða slydduéljum þegar líður á daginn, fyrst suðvestantil. Áfram hvasst á Norðausturlandi fram að miðnætti. Hiti 2 til 7 stig, en kólnar seinni partinn. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestan og norðvestan 10-15 m/s á Norðaustur- og Austurlandi, en hægari vindur annars staðar. Stöku skúrir eða él, en lengst af þurrt austanlands. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust við suður- og vesturströndina að deginum. Vaxandi suðaustanátt á Suður- og Vesturlandi um kvöldið og þykknar upp með dálítilli snjókomu eða slyddu. Á fimmtudag: Suðaustan 13-20, en snýst í hægari vestanátt á Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Slydda eða snjókoma með köflum, en úrkomuminna á Norðurlandi. Hiti um eða yfir frostmarki. Á föstudag: Breytileg átt 3-8 og bjart með köflum, en sums staðar dálítil él. Frost 0 til 5 stig. Á laugardag: Breytileg átt og yfirleitt léttskýjað, en sums staðar él, einkum við ströndina. Hiti um eða undir frostmarki. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en snjókoma á norðanverðu landinu, einkum síðdegis. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir austanátt með snjókomu eða slyddu, en lengst af þurrt vestanlands. Hlýnar aðeins í veðri.
Veður Færð á vegum Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent „Þetta situr náttúrulega í manni“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Fleiri fréttir Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Sjá meira