„Vorum náttúrulega að mæta Íslandsmeisturunum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. mars 2026 21:44 Sigursteinn Arndal fer yfir hlutina með sínum mönnum. Vísir/Anton Brink „Það var alltaf vitað mál að þetta yrði aldrei auðvelt,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir að liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta í kvöld.
FH-ingar unnu í kvöld sex marka sigur gegn Fram, 27-33. Með sigrinum sendi FH Íslandsmeistara Fram í snemmbúið sumarfrí. „Ég var rosa ánægður með það hvernig við mættum inn í þennan leik. Við náðum yfirhöndinni og mér fannst við alltaf vera með hana í þessum leik. En við vorum náttúrulega að mæta Íslandsmeisturunum, frábæru liði á þeirra heimavelli, og það var gefið mál að þeir myndu ekki gefast upp hérna. En við unnum bara hrikalega hart að þessu í 60 mínútur og þess vegna endum við í sanngjörnum sex mörkum,“ bætti Sigursteinn við. Þá hrósaði hann sínum mönnum fyrir mikinn aga í kvöld. „Eins og ég segi þá vorum við að mæta mjög góðu liði og ég var bara gríðarlega ánægður með hversu agaðir við vorum og hversu mikla vinnusemi við sýndum. Mér fannst það skapa þetta.“ „Við búum líka að því að við áttum við þá einvígi í úrslitakeppninni í fyrra þar sem gekk á ótrúlega mörgum hlutum. Mér fannst við vera góðir í að fókusera á þá þætti sem skiptu máli og þess vegna héldum við haus í dag.“ Sigursteinn og lærisveinar hans bíða nú eftir því að sjá hvort liðið mætir Haukum eða Aftureldingu í undanúrslitum. „Það á bara eftir að koma í ljós hverja við fáum þar, hvort það verða Haukar eða Afturelding. En við verðum klárir í hvort sem er.“ Hann viðurkennir þó að fyrir hinn hlutlausa aðdáanda væri mun meira spennandi að fá Hafnarfjarðarslag í undanúrslitum. „Jú, ég held að það viti það nú allir að það eru ótrúlegir leikir. Það yrði einhver nett klikkun, sko,“ sagði Sigursteinn að lokum.
Olís-deild karla FH Fram Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Sport Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira