Skjaldborg um bílaeigendur? Jean_Rémi Chareyre skrifar 30. mars 2026 15:30 Verð á bensíni og dísilolíu hefur hækkað töluvert eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran og Hormússund lokaðist. Við slíkar aðstæður dúkka iðulega upp hugmyndir um að lækka skatta á eldsneyti til að vega upp á móti verðhækkunum og ýmsar þjóðir hafa nú þegar gripið til slíkra ráðstafana. Við fyrstu sýn virðist þetta vera ágætis hugmynd: hækkanir á eldsneytisverði geta gert bílaeigendum erfitt fyrir og það er skylda ríkisins að koma til aðstoðar á erfiðum tímum. En við nánari skoðun eru mun fleiri rök sem mæla gegn slíkri ráðstöfun. Ef ætlunin er að koma til móts við lágtekjufólk sem hefur engan annan valkost en að fara sínar daglegar ferðir á bensín- eða dísilbíl, þá eru til aðrar leiðir sem samrýmast miklu betur hagsmunum þjóðarinnar í heild. Einfaldur útreikningur til að byrja með: verð á bensíni hefur hækkað um rúmar 30 krónur síðan fyrir stríðið. Miðað við bíl sem eyðir 6 lítrum á hundraðið og er ekinn 1200 km á mánuði þýðir þetta aukinn kostnaður upp á 2.160 krónur á mánuði. Flest heimili á Íslandi munu alveg lifa þetta af og þótt einhver lítill hópur geti raunverulega lent í vandræðum réttlætir það varla skattalækkun á línuna. Þar að auki myndi slík skattalækkun valda ýmsum neikvæðum aukaverkunum: Heimili með mjög háar tekjur, sem kaupa almennt meira eldsneyti en tekjulægri heimili og eyða jafnvel eldsneyti í ýmsa afþreyingu, myndu njóta góðs af henni þrátt fyrir að þurfa ekki á sérstökum stuðningi að halda. Hún myndi í reynd jafngilda niðurgreiðslu til olíuframleiðsluríkja, þar á meðal Rússlands, Bandaríkjanna og olíufursta í Miðausturlöndum (sem þurfa heldur ekki á slíku að halda). Hún myndi senda þau skilaboð til landsmanna að olíukreppan sé aðeins tímabundin krísa sem muni leiða hjá. Því miður er mjög líklegt að slíkar krísur verði sífellt algengari í framtíðinni, enda er hráolía takmörkuð auðlind sem verður sífellt meiri samkeppni um eftir því sem birgðir tæmast. Stjórnvöld ættu þvert á móti að senda þau skilaboð að mikið liggi við að losa okkur við þennan orkugjafa. Hún myndi leiða til þess að tekjur ríkisins dragist saman og þá eru líkur á því að það verði skorið niður á móti í félagslegum kerfum, sem kemur þá verst niður á þá sem við erum að reyna að verja. Slíkur niðurskurður getur líka leitt til aukins atvinnuleysis en fjármálaráðherra hefur nú þegar tilkynnt ákvörðun um að fækka ríkisstarfsmönnum um 1%. Kostnaður við aukið atvinnuleysi lendir að lokum á skattborgara. Ýmsir aðilar eru að reyna að selja slíka skattalækkun sem lið í baráttunni gegn verðbólgu, en með því er verið að rugla saman orsök og afleiðingar. Verðbólgan framundan er afleiðing af því að framboð af olíu í heiminum er að dragast saman. Minna framboð þýðir óhjákvæmilega að við neyðumst til að kaupa minna af olíu, enda munu skattalækkanir ekki búa til meira af henni, heldur aðeins færa vandamálið úr einum stað yfir í annan.Þetta þýðir þó ekki að ekkert sé hægt að gera. Það eru að minnsta kosti tvær leiðir færar til að létta byrðarnar hjá þeim sem þurfa virkilega á því að halda. Þær lausnir myndu koma í veg fyrir ofantaldar aukaverkanir og myndu kosta ríkið mun minna: Að veita tekjulægri heimilum stuðning í formi „orkustyrks“ sem væri þá tekjutengdur og myndi einskorðast við þá sem bæði búa langt frá vinnustaðnum (sér í lagi í dreifbýli) og hafa engan annan valkost til skamms tíma en að nota olíuknúið ökutæki. Að setja á fót félagslega rafbílaleigu sem myndi gera tekjulægri heimilum (sem hafa ekki efni á að kaupa sér rafbíl) kleift að leigja rafbíl í langtímaleigu fyrir hóflega upphæð. Sú ráðstöfun myndi um leið leiðrétta þann halla sem hefur verið á kerfi skattaívilnanna til rafbílakaupa, en það kerfi hefur verið gagnrýnt (réttilega) fyrir að nýtast tekjuhærri heimilum best. Slík félagsleg bílaleiga hefur verið sett á fót m.a. í Frakklandi og hugveitan Transport & Environment hefur mælt með henni sérstaklega. Almenn „skjaldborg um bílaeigendur“ er öruggasta leiðin til að tæma ríkiskassann án þess að koma í veg fyrir næstu krísu. Það er nauðsynlegt að aðstoða þá sem lenda milli steins og sleggju en almenn skattalækkun er ekki rétta leiðin til þess. Greinarhöfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður og meðlimur í loftslagshópnum París 1,5, sem beitir sér fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jean-Rémi Chareyre Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar