Litla gula hænan biður Ingu Sæland um að vanda sig, fjöregg þjóðarinnar er í húfi Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar 30. mars 2026 10:30 Veiðitímabilið er hafið. Bráðin er grunnskólakennarar á Íslandi. Handhafi veiðikortsins er Inga Sæland. Það er sama hversu langan tíma bakari fær til að baka köku, 25 mínútur eða 25 aldir. Kakan verður aldrei eins og væntingar stóðu til um nema að fyrir hendi sé rétta hráefnið og þau tól sem þarf til að baka kökuna. Færni bakarans og menntun nýtist illa ef vinnuskilyrði eru afleit. Í alvöru fólk. Haldið þið virkilega að lenging skólaársins og að auka kennsluskyldu grunnskólakennara eigi eftir að vera galdraþulan sem leysi vandann fyrir þá sem rýna stíft í Pisaniðurstöður ? Ég get fullyrt að sú er ekki raunin og rannsóknir styðja grun minn. Kannski ætti það ekki að koma neinum á óvart, að yfirvöld skuli í stað þess að ræða vandann heildrænt þá koma með ofangreindar fullyrðingar, miðað við þá orðræðu sem hefur verið frá því að sveitarfélögin tóku við grunnskólunum og róðurinn fór að þyngjast í menntamálum. Því miður þá er oft ekki rýnt nógu vel í þau gögn sem til eru áður en hrópað er á torgi. Kannski er ástæðan sú að yfirvöld þurfa að finna blóraböggul til að afsaka þá stöðu sem skólakerfið er í á Íslandi í dag í samanburði við aðrar þjóðir. Því miður var ríkið fljótt að láta sig hverfa þegar búið var að skila barninu til sveitarfélaganna og illa hefur gengið að fá það til að bera ábyrgð á barninu með sveitarfélögunum síðan það kom í ljós hversu kostnaðarsamar sérþarfir barnsins eru sem í þessu samhengi eru skólarnir. Ef „skóli án aðgreiningar“, „skóli fyrir alla“, „inngildandi skóli“ á að virka þarf að skapa aðstæður þar sem nám getur farið fram. Og það kostar meira að starfa eftir þeirri hugmyndafræði sem unnið er eftir í skólum á Íslandi í dag. Hættum öllum getgátum og að bera saman epli og appelsínur eða öllu heldur epli og grjónagraut. Greinum stöðuna á faglegan hátt og tökum ábyrgar ákvarðanir til framtíðar. Það er svo langt síðan við skitum upp á bak í menntamálum og svo langt síðan kennarar skutu upp neyðarblysum til að vekja yfirvöld og upplýsa um vandann. Mér féllust hendur þegar ég sá nýjasta útspil menntamálaráðherra. Sérstaklega í ljósi þess að við stöndum á tímamótum hvað varðar vinnu við virðismat kennara í tengslum við síðustu kjarasamninga. Ykkur að segja þá voru það ekki skotgrafirnar sem ég óttaðist mest, það að þurfa að svara fólki sem spyr út í orð ráðherra. Því eftir áratugi í faginu er ég komin með skráp. Það sem skelfdi mig mest var að þetta yrði kannski dropinn sem fyllti mælinn hjá einhverjum frábærum kennurum sem eru orðnir þreyttir á að vinna við ómanneskjulegar aðstæður og fá síðan yfir sig að þeir séu ekki að standa sig sem skyldi. Skólarnir eru ekki bara timbur og steypa heldur allt sem gefur þeim líf. Það er ógerlegt að reka skóla án fagfólks. Við höfum misst allt of mikið af flottu fagfólki úr skólakerfinu því það hefur ekki látið bjóða sér núverandi aðstæður. Ef við vöndum okkur ekki í þeirri vegferð að byggja upp öflugt skólakerfi á þeim stað sem við erum á í dag þá eigum við eftir gera meiri skaða en orðið hefur. Ég veit að margir kennarar bíða eftir niðurstöðu virðismatsins og hvernig yfirvöld ætla að tækla menntamálin í landinu. Við eigum eftir að missa fleira fagfólk úr menntageiranum ef við gerum ekki betur. Þá er ég líka að tala um þá sem hafa áhuga á að starfa í skólakerfinu í framtíðinni en taka u-beygju í aðra geira vegna þess ástands sem ríkir í dag. Það eru svo margir þættir sem þarf að rýna í hér á landi varðandi menntamál til að færast í rétta átt. Vegferðin er ekki einföld og sér í lagi ekki þegar um uppsafnaða innviðaskuld er að ræða. Við megum ekki gleyma því að sóknarfærin eru mörg og orðræðan um málaflokkin skiptir miklu máli fyrir alla til farsældar. Það sér það hver sem vill sjá að skóli fyrir alla er flókið fyrirbæri. Setjið ykkur í spor kennara með hóp af börnum sem öll hafa sínar sérþarfir. Hvað haldið þið að fari mikill tími í það í dag að útbúa námsefni og finna leiðir fyrir alla þessa nemendur í landi eins og Íslandi þar sem stjórnvöld gera kröfur en uppfylla ekki skilyrði um þau gögn, tæki og tól sem þarf til að uppfylla þær kröfur. Spáið aðeins í það. Hvaða aðrar fagstéttir á Íslandi eru meðhöndlaðar eins og kennarastéttin ? Það myndi engum detta í hug að sameina allar deildir á Landspítalanum og segja bæklunarlækni að taka við hjartasjúklingi og ná góðum árangri með hann án þess að skapa þannig aðstæður að hægt sé að bjarga sjúklingnum og útvega fagfólk, tæki og tól á deildina sem eru nauðsynleg til að sinna honum. Skólakerfið á Íslandi á ekki að blæða fyrir það hversu norðarlega á hnettinum við búum í fámennu strjálbýlu landi og hversu launa, húsnæðis og aðfangakostnaður er hár miðað við þær milljónaþjóðir sem við berum okkur saman við. Litla gula hænan segir: Vöndum okkur. Höfundur er sérkennari í grunnskóla, í stjórn KFR og áhugamanneskja um menntamál og framtíð komandi kynslóða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rakel Linda Kristjánsdóttir Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar