Svindl og falsaðar undirskriftir í Sviss Stefán Árni Pálsson skrifar 30. mars 2026 11:03 Ólafur Guðmundsson á æfingu landsliðsins í Svíþjóð, á sínum gamla heimavelli í Kristianstad. VÍSIR/VILHELM Handboltamaðurinn Ólafur Guðmundsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þráðlát meiðsli hafa sett strik í reikninginn. Ólafur gat ekki klárað tímabilið með sænska liðinu Karlskrona vegna meiðsla og hefur nú ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 15 ára feril í atvinnumennskunni.
Á ferli sínum hefur hann leikið með FH og sem atvinnumaður i Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi og Sviss en lengst af hjá Kristiandstad í Svíþjóð þar sem fjölskyldan hefur nú komið sér fyrir. Ólafur vann bronsið með íslenska landsliðinu árið 2010. „Síðasta sumar fæ ég í bakið, brjósklos, og ef ekkert spilað á þessu tímabili. Ég hef verið að reyna að koma mér inn á völlinn hægt og rólega með misgóðum árangri. En af virðingu við mig og virðingu við klúbbinn þá ákvað ég að kalla þetta gott núna,“ segir Ólafur Andrés Guðmundsson í Sportpakkanum á Sýn í síðustu viku. Ólafur segist vera mjög stoltur af ferlinum. „Þegar maður er búinn að taka þessa ákvörðun þá fer maður að gera hana upp og láta hana malla hægt og rólega. Maður fer að hugsa ef og hefði en heilt yfir er ég stoltur af ferlinum.“ Í stóru hlutverki Hápunkturinn á ferlinum var í Svíþjóð. „Þegar ég kem til baka til Kristanstad 2014/15 þá tóku við fjögur fimm ár sem voru alveg frábær. Við töpuðum bara ekki leik í deildinni, vorum með frábært lið og spiluðum í Meistaradeildinni og unnum alla þessa titla. Ég var í rosalega stóru hlutverki.“ Fjölskyldan er ekki á leiðinni heim til Íslands en hún er búsett í Kristanstad. „Konan mín er með frábæra vinnu og börnin mín í góðum skólum. Okkur líður rosalega vel hérna og höfum aðlagast vel í þessu sænska samfélagi.“ Ólafur segist ekki sjá eftir miklu á ferlinum en tíminn í Sviss með Zürich hafi verið skrautlegur. „Það er efni í eina góða bók. Þar gerðust alls konar hlutir sem maður hefði aldrei haldið að gætu gerst í Sviss. Við erum að tala um svik og pretti, svindl og falsaðar undirskriftir og alls konar ævintýri sem maður hefði ekki trúað.“
Handbolti Sænski handboltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Sjá meira