Hingað til náms. Hér til framtíðar Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Þorsteinn Kristjánsson skrifa 30. mars 2026 07:00 Akureyri er öflugur háskólabær. Til að tryggja að svo verði áfram þarf að tryggja það að hér sé raunhæft að búa meðan á námi stendur. Þar skipta stúdentagarðar sköpum. Þeir eru ekki aðeins þak yfir höfuðið heldur lykilforsenda staðnáms, auk þess að efla háskólasamfélagið og skapa meira líf í bænum okkar. Stúdentagarðar eru ekki aukaatriði eða lúxus. Þeir eru forsenda öflugs háskólasamfélags. Án nægs og hagkvæms húsnæðis í nágrenni við Háskólann á Akureyri veikist staðnámið, tengslin verða minni og bæjarlífið fátækara. Valið snýst í raun um framtíðarsýn. Ætlum við að byggja upp samfélag þar sem ungt fólk sér framtíð sína eða sætta okkur við að það fari annað? Nýir stúdentagarðar á háskólasvæðinu Í dag rekur FÉSTA (félagsstofnun stúdenta á Akureyri) stúdentagarða í Kjalarsíðu, Klettastíg, Tröllagili, Drekagili og Útsteini. Þær hafa þjónað stúdentum vel í gegnum tíðina, en margar þessara íbúða eru úreltar vegna stærðar sinnar og aðbúnaðar og uppfylla ekki þarfir nútímanemenda. Hugsunin var að dreifa stúdentum um Akureyri svo þeir tengist betur inn í samfélagið, en reynslan sýnir að öflugasta námsumhverfið verður til þegar nemendur búa nær háskólanum og hver öðrum. Þar skapast tengsl, frumkvæði og ný tækifæri. Við í Sjálfstæðisflokknum teljum að þetta sé forgangsmál. Þess vegna studdum við að veita Félagsstofnun stúdenta á Akureyri stofnframlag til uppbyggingar nýrra stúdentagarða á háskólasvæðinu fyrir allt að 126 íbúðum. Það er pólitísk ákvörðun að fjárfesta í framtíð bæjarins. Við veljum að gera það. Háskólinn er eitt stærsta byggðarmálið Sterkur háskóli á Akureyri með öflugu staðnámi er lykill að blómlegra atvinnulífi og fleiri tækifærum fyrir ungt fólk. Ef við viljum fjölbreytt atvinnulíf og aukna verðmætasköpun þurfum við að skapa skilyrði sem hvetja fólk til að flytja til Akureyrar, festa hér rætur og byggja upp framtíð sína. Það krefst markvissra aðgerða. Bærinn þarf að styðja enn betur við samstarf og samtal milli háskólans og atvinnulífsins svo hugmyndir, þekking og frumkvæði fái að vaxa og skila sér í ný störf og aukin tækifæri. Metnaður okkar er skýr: við viljum að ungt fólk velji Akureyri. Við ætlum að skapa aðstæður sem gera það að raunhæfum og aðlaðandi kosti. Akureyri á bjarta framtíð sem byggist á fólkinu sem ákveður að búa hér til framtíðar. Komdu sem nemandi. Vertu áfram sem Akureyringur. Berglind Ósk Guðmundsdóttir er oddviti og Þorsteinn Kristjánsson skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar