Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. mars 2026 10:10 Björgunarsveitirnar sinntu ýmsum verkefnum í óveðrinu í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Yfir hundrað björgunarsveitarmenn voru ræstir út í ýmis verkefni vegna óveðursins sem skall á suðvesturhluta landsins í gær. Nokkuð var um foktjón á Suðurnesjum, Akranesi og Hvammstanga.
Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. „Þetta slapp til á höfuðborgarsvæðinu en það var hvasst víðast annars staðar um vestanvert landið. En það var leiðindafærð.“ Björgunarsveitarmenn hafi aðstoðað ökumenn í vandræðum á Þingvallavegi, í Grafningi, á Mikladal á Vestfjörðum og við Flateyrarafleggjara. Björgunarsveitir sinntu sömuleiðis mörgum vegalokunum fyrir Vegagerðina. Snjóflóð féll í veg fyrir rútu Á Akranesi var björgunarfélagið kallað út í tvígang vegna foktjóns og einnig var björgunarsveitin Ægir í Garði og Þorbjörn í Grindavík kallaðar út vegna foktjóns. Björgunarsveitin Blakkur á Patreksfirði og Bræðrabandið á Rauðasandi voru kallaðar út vegna lítillar rútu í Raknadal innarlega í Patreksfirði en lítið snjóflóð hafði fallið á veginn og lokað honum. Blindbylur var í Patreksfirði þegar björgunarsveitir komu farþegum rútunnar til aðstoðar.Landsbjörg Bræðrabandið fór á snjóbíl og sótti fólkið upp úr miðnætti, en rútunni var snúið við og ekið til baka. Þá sinnti Blakkur flutningi á heilbrigðisstarfsfólki á Patreksfirði á þriðja tímanum í nótt. „Deginum lauk á að fylgja sjúkrabíl yfir Vatnaleið á Snæfellsnesi en allt gekk þetta tiltölulega greiðlega,“ segir Jón Þór.
Björgunarsveitir Veður Færð á vegum Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira