Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. mars 2026 12:15 Bílinn valt en Tiger Woods slapp ómeiddur. Hann var tekinn í gæsluvarðhald, grunaður um akstur undir áhrifum lyfja, en hefur nú verið sleppt gegn tryggingu. getty Golfgoðsögnin Tiger Woods varð valdur að bílslysi í fjórða sinn á ferlinum í gærkvöldi. Hann getur þó prísað sig sælan að hafa sloppið ómeiddur í þetta sinn.
Woods er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum lyfja þegar hann reyndi að taka fram úr öðrum ökumanni í Flórída í gær, með þeim afleiðingum að bílarnir rákust saman. Sjá einnig: Tiger Woods lenti í bílslysi Bíllinn sem Woods keyrði í gærkvöldi valt og hann þurfti að skríða út um hurðina farþegamegin en slapp alveg ómeiddur að sögn lögreglu. Hann var þá tekinn í gæsluvarðhald en hefur nú verið sleppt gegn tryggingu. Tiger Woods var ekið burt af lögreglustöðinni í gærkvöldi. Joe Raedle/Getty Images Þetta var í fjórða sinn sem Tiger Woods veldur bílslysi en hin þrjú slysin hafa sett mikið mark á líf hans og feril sem atvinnumanns í golfi. 2009: Tiger klessir á brunahana Nóttina eftir Þakkagjörðarhátíðina í Bandaríkjunum árið 2009 hrundi líf Tiger Woods algjörlega. Hann hafði verið að lifa tvöföldu lífi og ríghaldið framhjá eiginkonu sinni en allt komst þetta upp eftir bílslys þar sem Woods klessti á brunahana. Woods var á þeim tíma einn allra vinsælasti íþróttamaður heims, eftir að hafa unnið 14 risamót í golfi frá 1997 til 2008. Hann slasaðist alvarlega í slysinu og Elin Woods skildi við hann. Tiger tók sér langa pásu frá golfi og hefur aðeins unnið eitt risamót síðan, Masters 2019. 2017: Tiger sofnar undir stýri Þann 29. maí árið 2017 lenti Tiger Woods í öðru alvarlegu bílslysi, þegar hann ók undir áhrifum kvíðalyfja, svefnlyfja og kannabisefna. Woods hafði orðið háður lyfjunum eftir bakaðgerð en leitaði sér hjálpar eftir handtökuna og fór í meðferð. 2021: Tiger í lífshættu Þann 23. febrúar árið 2021 var Tiger Woods heppinn að sleppa lifandi úr slysi eftir að hafa ekið á rúmlega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. Bíllinn valt af veginum og björgunaraðilar þurftu að klippa Woods út úr bílnum sem gjöreyðilagðist. Rannsókn leiddi síðar í ljós að Woods hefði óvart stigið á bensíngjöfina þegar hann ætlaði að stíga á bremsupedalann. Tómt lyfjaglas fannst í bílnum sem Woods keyrði en ekkert óeðlilegt fannst í þvagsýni. Woods slasaðist alvarlega og gekkst undir nokkrar aðgerðir, eftir að hafa lent í opnu beinbroti á fætinum og mölbrotið hinn ökklann. Hefur glímt við mikil eftirköst Öll þessi slys og áverkarnir sem Tiger Woods hlaut í þeim hafa haft mikil áhrif á golfferilinn. Síðan hann lenti í slysinu árið 2021 hefur hann verið sárverkjaður í þau fáu skipti sem hann hefur getað spilað. Woods sneri aftur til keppni á Masters-mótinu árið 2022 og náði í gegnum niðurskurð en hafnaði í 47. sætinu. Síðar sama ár dró hann sig úr keppni á PGA-meistaramótinu og sömu sögu var að segja af Masters-mótinu árið 2023. Hann keppti síðast á The Open árið 2024 en síðan þá hefur hann gengist undir aðgerð í baki og slitið hásin. Fyrr í vikunni sneri Woods loks aftur á golfvöllinn eftir rúmlega árs fjarveru. Endurkoman var þó ekkert sérstaklega ánægjuleg því hinn fimmtugi Tiger tapaði stórt. Nú á eftir að koma í ljós hvort hann stefni enn á þátttöku á Masters-mótinu eftir tvær vikur en Woods er allavega ekki slasaður eftir bílslysið í gærkvöldi.
Golf Bílslys Tigers Woods Tengdar fréttir Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golfgoðsögnin Tiger Woods hefur verið ákærður fyrir akstur undir áhrifum eftir að bíll hans valt á Jupiter Island í Flórída í dag. 27. mars 2026 21:34 Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Tiger Woods mun hafa lent í bílslysi í Flórída í dag að því er fram kemur í bandarískum fjölmiðlum en ástand hans er ekki þekkt. 27. mars 2026 19:47 Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fleiri fréttir Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Sjá meira
Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golfgoðsögnin Tiger Woods hefur verið ákærður fyrir akstur undir áhrifum eftir að bíll hans valt á Jupiter Island í Flórída í dag. 27. mars 2026 21:34
Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Tiger Woods mun hafa lent í bílslysi í Flórída í dag að því er fram kemur í bandarískum fjölmiðlum en ástand hans er ekki þekkt. 27. mars 2026 19:47