Neitaði að hefja seinni hálfleik fyrr en stuðningsmenn hlýddu Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. mars 2026 15:01 Stuðningsmenn Fram skildu lítið í þessu en myndin er frá því í fyrra. vísir Eftirlitsmaður á vegum HSÍ leyfði seinni hálfleiknum hjá FH og Fram í gærkvöldi ekki að hefjast fyrr en stuðningsmenn Fram færðu sig í önnur sæti.
Þegar seinni hálfleikur FH og Fram átti að hefjast hafði stuðningssveit Fram fært sig í önnur sæti. Sveitin var enn þá í sinni stúku, þar sem stuðningsmönnum gestaliðsins var leyft að vera. Hlynur Leifsson, eftirlitsmaður HSÍ á leiknum, skipaði dómurum leiksins þá að hefja ekki seinni hálfleikinn fyrr en stuðningsmennirnir færðu sig aftur í sætin þar sem þeir sátu í fyrri hálfleiknum. Eftir nokkra stund og mikil mótmæli tókst loks að sannfæra stuðningsmennina. Fyrirliði Fram, Rúnar Kárason, bað þá um að færa sig aftur í hin sætin og seinni hálfleikur hófst. Vísir hafði samband við formann dómaranefndar HSÍ, Reyni Stefánsson, sem sagði stuðningsmenn Fram ekki hafa brotið neinar reglur um sætisskipan. Þeir hefðu verið í sinni stúku og ekki með trommurnar beint fyrir aftan ritaraborðið, sem er bannað. Þeir hafi vissulega verið með of margar trommur, aðeins ein er leyfileg, en eftirlitsmaðurinn setti ekkert út á það heldur bara sætisvalið. Segir reglum hafa verið fylgt Eftirlitsmaðurinn Hlynur Leifsson vill hins vegar meina að stuðningsmennirnir hafi verið á svæði þar sem þeir máttu ekki sitja, og þar af leiðandi hafi ákvörðunin verið í samræmi við reglur. Vísir hafði samband við Hlyn í morgun og óskaði eftir rökstuðningi. Hann vildi ekki svara fyrir ákvörðunina símleiðis en svaraði skriflegri fyrirspurn Vísis. „Um þetta atriði sem þú spyrð um er m.a. fjallað um í reglugerð um handknattleiksmót. Þar er ákvæði sem segir að bannað sé að vera með trommur og/eða lúðra fyrir aftan ritara- og tímavarðaborð og skiptisvæði liða. Þetta er ekkert nýtt og hefur verið í gildi í fjölda ára. Í leikhléinu kemur ábending frá ábyrgðarmanni leiks og starfsmanni á bekk FH að stuðningsmenn Fram sem eru með trommur séu að færa og staðsetja trommurnar á þann hátt að það sé í andstöðu við reglur. Óskað var eftir því við þessa stuðningsmenn Fram sem voru með trommurnar að þeir staðsettu sig þannig að það bryti ekki í bága við reglur. Þeir verða ekki við þeirri beiðni. Leikmaður Fram segir þeim svo að færa sig og þá gera þeir það,“ svaraði Hlynur. Samkvæmt frétt Handkastsins urðu stuðningsmenn Fram þó við beiðni eftirlitsmannsins um að færa sig og fóru þeir ofar í stúkuna, en seinni hálfleikurinn hófst ekki fyrr en þeir settust á sama stað og þeir höfðu setið í fyrri hálfleik.
Olís-deild karla Fram FH Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira