Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Sindri Sverrisson skrifar 26. mars 2026 09:40 Janus Daði Smárason er búinn að handsala samning við Barcelona. Barcelona Eins og lengi hefur legið í loftinu þá mun Janus Daði Smárason ganga til liðs við Barcelona en spænska stórveldið hefur nú greint frá þessu á miðlum sínum.
Íslenski leikstjórnandinn verður leikmaður Barcelona í sumar, þegar hann kemur frá Pick Szeged í Ungverjalandi, og er samningur hans við Börsunga til sumarsins 2029. ✍️ 𝐉𝐚𝐧𝐮𝐬 𝐒𝐦𝐚́𝐫𝐚𝐬𝐨𝐧, 𝐧𝐨𝐮 𝐝𝐢𝐫𝐞𝐜𝐭𝐨𝐫 𝐝𝐞 𝐣𝐨𝐜 𝐩𝐞𝐫 𝐚𝐥 𝐁𝐚𝐫𝐜̧𝐚L’internacional islandès signa des d’aquest estiu i fins al 2029: https://t.co/FDdzeFfU3F pic.twitter.com/9fCtfdZEck— Barça Handbol (@FCBhandbol) March 26, 2026 Janus Daði hefur verið sagður á leið til Barcelona og náðust myndir af honum í heimsókn þar síðasta haust. Hann hefur þó að sjálfsögðu ekki viljað staðfesta neitt sjálfur í þessum málum heldur beðið eftir því að félagið geri það. Hjá Barcelona hittir Janus fyrir félaga sinn úr landsliðinu, Viktor Gísla Hallgrímsson. Félagið hefur haft algjöra yfirburði á Spáni og orðið spænskur meistari öll tímabil frá árinu 2011 auk þess að vinna til að mynda Meistaradeild Evrópu þrisvar á árunum 2021-24. Janus, sem er uppalinn Selfyssingur en lék einnig með Haukum hér á landi, hefur áður spilað í Danmörku, Þýskalandi og Noregi en verið hjá Pick Szeged síðustu tvö ár. Auðvelt val þegar stærsta félag heims hefur samband Í viðtali á vef Barcelona kveðst Janus að sjálfsögðu stoltur af því að ganga til liðs við spænska risann. „Ég vona að ég geti komið með mína styrkleika og hugarfar til að verða hluti af liði sem nú þegar er afar sigursælt. Það var ekki erfitt fyrir mig að taka ákvörðun þegar Barcelona hafði samband. Þetta er sennilega stærsta félag heims og það er heiður fyrir mig sem leikmann að verða hluti af þessari fjölskyldu,“ sagði Janus.
Spænski handboltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira